19. júní


19. júní - 19.06.1986, Page 17

19. júní - 19.06.1986, Page 17
og sinnti uppeldisstörfunum og þaö var mögulegt af því að við höfum gert afskaplega litlar veraldlegar kröfur og búum þröngt. Mér finnst stórkostlegt að eiga þrjú fullkomlega heilbrigð börn, og mér finnst það skipta meira máli en steinsteypa. Hlutirnir eru farnir að skipta of miklu máli og þá einkum þessi framhlið sem fólk er að koma sér upp. Ég veit ekki hvort maður getur talað um að skilja eitthvað eftir sig, en mig langar að hverfa héðan sáttur við það sem ég hef gert og þá sent ég hef þjónað. Ég ætla ekki að arfleiða börnin mín að neinu veraldlegu, ég vil heldur styðja þau á annan hátt því börn og unglingar þurfa mikið á stuðningi og vináttu foreldr- anna að halda. Ég held að fólk geri ekki nóg af því að hugsa sig um og ræða málin, því breytingarnar, sem orðið hafa á þjóðfélaginu og lífi okkar á undanförnum árum hafa vissulega verið miklar og djúpstæðar. Makar þurfa að gefa sér tíma til að halda fund og ræða um verkaskiptingu, hlutverka- skiptingu og hvað hvort um sig vill gefa til þess að fá lífsfyllingu. Núerþaðlífs- fylling margra feðra að vera meira með börnunum sínum og lífsfylling sumra kvenna að vera minna með þeim, síðan getur þetta verið öfugt. Ef efnahagurinn leyfði gæti ég vel hugsað mér að hægja á ferðinni og vinna ntinna til þess að geta sinnt börn- ununi meira, svo ekki sé nú talað um barnabörnin þegar þar að kemur. Það var oft sagt við mig þegar börnin voru minni að ég skyldi bara bíða og sjá þegar þau yrðu unglingar, þá byrjuðu vandamálin. Þetta finnst mér vera mesta reginvitleysa. Það er afskaplega gaman að eiga unglinga og ég er núna að endurlifa unglingsárin í gegnum þau. Mér finnst ég hafa svo rnikið að þakka fyrir og ég er farinn að trúa á kraftaverkin því allt gengur svo vel. Fyrsta væntingin gagnvart barni er að það sé heilbrigt og síðasta væntingin gagnvart barninu er í rauninni sú sama. Heilbrigði og hamingja er það sem skiptir rnáli hvar svo sent börnin manns finna hana.“ Heiðar við störf á heimilissýningu í Laugardalshöll. Heiðar ásamt Marieilu Smith-Masters, sem varfyrsti snyrtikennarinn hans, á tískusýn- ingu hjá Jean Varon árið 1973. Mariella er ein af þremurfremstu snvrtisérfrœðingum i Bandaríkjunum í dag og séroft um forsíðuna á Vogue. 17

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.