19. júní - 19.06.1986, Page 18
Maður
KVENFRELSAST
EKKI
- Hverskonar fyrirmynd hafðir þú í
œsku um hlutverk karla og kvenna í
sambúð?
Ja, ég er sveitamaður, og það má
segja að á yfirborðinu hafi hlutverka-
skiptingin verið mjög heföbundin. En
fósturmóðir mín var afskaplega skelegg
kona, og hún tók þátt í útiverkum
þegar þess þurfti. Auk þess þótti fóst-
urföður mínum sjálfsagt að taka að sér
inniverkin ef hún þurfti að bregða sér
af bæ. Þannig að það má segja að ég
hafi alist upp við það að það væri sjálf-
sagt að ganga í öll verk.
- Nú varst þú í heimavistarskóla sem
unglingur, geturðu lýstþvíhvers konar
hugmyndir þú gerðir þér um slúlkur
þá?
Ég hef alltaf átt auðvelt með að
eignast vinkonur og lék mér mikið
með stelpum sem strákur í sveitinni,
og þessi eiginleiki fylgir mér enn.
Þegar ég var í M.A. fannst mér til
dæmis skiptingin í bekki eftir kynjum
fáránleg. En ég var alltaf svo nálægt
kvennaheiminum vegna þessara vin-
áttusambanda að mér fannst ég vera
fyrir vikið minna spennandi sem karl-
maður. Mér fannst ganga betur að ná
í stelpu ef ég lék mig töff, hörkulegan.
Unglingsstrákar eiga bágt
Það er alltaf verið að væla um það
hvað konur eigi bágt, en það eru ung-
lingsstrákar sem eiga bágt. Þeir þurfa
að „standa sig“, þeir þurfa að afmeyja
stelpurnar, og svo kemur þessi sívax-
andi krafa um að fullnægja þeint.
Aumingja strákarnir, þvílíkt hundalíf
fyrir marga þeirra. Og ég held að ein-
mitt þessi pressa valdi varnarviðbragði
sem er næstum hatur, eða a.m.k.
kvenfyrirlitning. Yngri stráka langar
ekkert aö taka þátt í þessunt leik sent
strákar leika, þessum lygum um að
þeir hafi komist yfir þessa eða hina
stelpuna. Æskuástarhugmyndin er í
rauninni sterkari í þeim, en þeir verða
alltaf að standa á tánum, reyna að vera
töff.
Mér finnst vera stríð milli kynjanna.
Kannski er hóruhúsakerfið hjá katol-
ikkum ekki svo vitlaust að þessu leyti.
- Hvað meinarðu?
Þegar pabbinn fer með strákinn sinn
á hóruhúsið til að ná úr honum hroll-
inum - minnka óttann við konuna og
kynlífið.
- Þú kynntist hóruhúsum þegar þú
ferðaðist með vörubílstjórum um Bras-
ilíu sem unglingur. Hvers varðstu vís-
ari?
Það má segja að í Brasilíu hafi ég
fengið kjaftfylli mína af karlremb-
unni. Mér fannst staða konunnar
vond. Það mátti skila eiginkonunni
eins og gallaðri vöru ef hún reyndist
hafa sofið hjá fyrir brúðkaupsnóttina.
Vörubílstjórar gista í hóruhúsahverf-
um, og ég rambaði um á daginn og
rabbaði við stúlkurnar þegar þær voru
að undirbúa sig undir kvöldið. Sumar
þeirra höfðu lent í þessari atvinnu
vegna þess að þær höfðu trúlofast,
freistast til að sofa hjá honum, og verið
fleygt á dyr. Þetta eru lágstéttarstúlkur
og þær áttu engra annarra kosta völ en
að stunda vændi. Þar var ég líka var
við leikinn sem gildir milli kynjanna.
Þetta var eins og að vera baksviðs í
leikhúsi áður en sýning hefst.
- Þú giftirþig um tvítugt eftir óvenju-
leg unglingsár. Hvers konar hug-
myndir gerðirðu þér um hjónabandið?
Ég dembdi mér í hlutverk heimilis-
föður strax og hafði háleitar hug-
myndir um jafnrétti. En eftir að
börnin fæðast og maður þarf að vakna
til þeirra grátandi á nóttunni í stað
þess að geta einbeitt sér að háskóla-
náminu sínu, þá reynir fyrst á jafn-
réttið.
Konur eru betur jarðtengdar
- Finnst þér þú vera kvenréttinda-
maður?
Nei, mér finnst ég vera óttaleg karl-
remba. Ég reyni að koma mér hjá
ábyrgðinni að reka heimili. Konan
mín er dugleg, mikil verkmanneskja,
en ég aftur á móti latur, svo ég læt hana
gjarnan um tiltektir. Mikilvægi heimil-
isstarfa viröist meira hjá konunni.
Karlinn getur alltaf fundið sér eitthvað
sem er miklu mikilvægara. Og það eru
mikil forréttindi sem karlar íaka sér að
sinna starfi og áhugamáli og ganga
síðan að notalegum hvíldarstað sem
einhver annar tekur ábyrgð á. Af því
að konur ala börnin verða þær betur
jarðtengdar, skynja betur nauðsyn
þess að heimilishaldið virki. Karlmað-
urinn verður að gefa gildismati kon-
unnar sjens, og hún aftur slaka á
kröfum ntóður sinnar um fínpússningu
á heimilinu. Síðan er fundinn meðal-
vegur, byggður á þessum tilslökunum.
- Þú varst heimavinnandi húsfaðir í
tvö ár í Frakklandi á meðan kona þín
var við nám. Hvernig gekk það?
Það gekk satt að segja ekki nógu
vel. Það reyndi óskaplega á hjóna-
SEGIR ÆVAR KJARTANSSON
18