19. júní - 19.06.1986, Page 19
bandið. Börnin gátu ekki komið í stað
framhaldsnáms míns, og mér tókst
ekki að taka á mig fulla ábyrgð á heim-
ilishaldinu, konan mín var ekki
stikkfrí. Hún er líka svo miklu dug-
legri en ég.
Karlmenn hégómlegri
— Hversvegna er svo erfitt fyrir karl-
mann að gefa eftir í þessu sambandi?
Karlmenn eru hégónilegri en konur.
Þeir sækjast ekki endilega bara eftir
góðum launum, heldur eftir „prestige",
áliti. Konur greina betur í sundur hvað
er mikilvægt. Karlar taka gjarnan
karlaleiki sína alvarlega. Sem vinstri-
maður finn ég hvað mönnum finnst
mikilvægt að berjast fyrir hugsjón og
mannréttindum, en gleyma svo börn-
unum sínum. Konur missa sig sjaldnar
í þessa dellu, en karlar hella sér í hana.
- Nú langar mig að spyrja þig út í
börnin þín?
Þegar átök eru um kynhlutverk á
heimilinu er það erfitt fyrir börnin.
Stelpa má ekki finna að karlmenn séu
ræflar, og strákur ekki alast upp of
mjúkur. Varðandi verkaskiptinguna
þá finn ég að sonur minn kemur sér
frekar hjá heimilisstörfum, eflaust af
því að ég geri það. Mér finnst annars
að uppeldi sé að gera hvern einstakling
færan um að sjá um sig sjálfan:
menntun, heimilisstörf og umönnun
barna. Sonur minn á að passa yngri
frændsystkin rétt eins og systir hans.
- Hvers óskarðu þér handa dóttur
þinni?
Að hún geti haft l'ull umráð yfirsínu
lífi og það hefti hana ekki að vera
kona. Eg vona að hún þurfi aldrei að
missa mjúku gildin í samkeppninni um
störf.
- Hvernig finnst þér að finna með
konum?
Ég hef unnið mikið með konum, og
líka verið í þeirri aðstöðu að yfir-
maður minn var kona, og mér líkaði
það vel. Konur líta síður á persónur
sem tæki til að koma sér áfram. Ég
verð hinsvegar skelkaður þegar ég
rekst á karl-konur sem hafa tekið upp
leikreglur karla, vegna þess að þau
gildi eru ómanneskjuleg.
- Hvort finnstþér áhrifameira ísam-
skiptum kynjanna, þessi persónu-
bundnu átök um stöðu eða sértækt afl
eins og kvenréttindahreyfingin?
Ja, grunnurinn er samskipti mann-
Viðtal: Sigrún Harðardóttir
eskja á milli. En kvenfrelsistal hefur
fært samskiptin inn í opna umræðu.
Karlar geta líka vitnað í kvennabók-
menntir. Þær eru orðnar menningar-
legt viðfangsefni. Við höfum lesið
kvennabókmenntir og það hefur haft
áhrif á form, tjáningarmáta jafnréttis-
baráttunnar. Ég er hrifinn af kvenna-
framboði og kvennalista og hreyfing-
unni almennt. Hún er mjög athygl-
isverð. En kvenfrelsishreyfingin er
menningarlegt og félagslegt fyrirbæri,
ekki trú. Maöur kvenfrelsast ekki.
- Nei, það gera konur.
(Ljósm. AFG.)
19