19. júní


19. júní - 19.06.1986, Side 20

19. júní - 19.06.1986, Side 20
JON VERÐA BÆÐI AÐ SKIUA SJÓNARMIÐ HINS OG GEFA EFHR segir Guðmundur Ámason, 25 ára sölu- og skrifstofumaður - Hvernig mórall var í kringum þig gagnvart stelpum þegar þú varst ung- lingur? „Ég var í hópi með dansfríkum, og við fórum út að skemmta okkur og dansa. Það var enginn metingur um að komast yfir stelpur. Það voru að vísu glanspíur í kringum okkur, en þær höfðuðu ekki til mín, og konan mín var ekki í þeirra hópi.“ - Nú fóruð þið að vera saman þegar þú varst 17 ára, hvernig hugmyndir gerðirðu þér um sambúð? „Ég var svo ungur þá að ég held ég hafi ekki gert mér neinar sérstakar hugmyndir. Við vorum saman í þrjú ár, keyptum okkur svo íbúð, giftum okkur og skelltum okkur í ekta brúð- kaupsferð til útlanda á eftir. Hún vann Viðtal: Sigrún Harðardóttir úti þar til við eignuðumst dóttur okkar, var svo heima í nokkurn tíma og er í hlutastarfi núna. Sjálfur var ég fyrst í stað í þremur störfum. Svo það má segja að ytri aðstæður hafi ráðið öllu um fyrirkomulagið hjá okkur.“ - Akváðuð þið þá ekki formlega neina verkaskiptingu? „Nei, sá sem var uppistandandi eftir daginn eldaði matinn. Þegar hún var heima með barnið sá hún um heimilið. Núna elda ég stundum." Konur skipuleggja tíma sinn ekkinóg - Getur þú hugsað þér að vera heima- vinnandi? „Já, það væri meiri tími til að vera með barninu og fjölskyldunni. Mér finnst konur ekki skipuleggja tímann sinn nógu vel sér til hagsbóta. Þó að húsmóðurstörf séu vinna, þá eru þau ekki eins erfið eins og t.d. að vera í fiski. Krakkinn bindur að vísu ein- hvern tíma dagsins, en með skipulagn- ingu er hægt að sinna áhugamálum sínum. Konur hafa alltaf þessa ógur- legu skyldu að rjúka heim og elda mat- inn eins og karlinn sé ósjálfbjarga, sem er auðvitað vitleysa. Það er alinn upp í manni aumingjaskapurinn.“ - Nú heyrir maður unga menn tala um áhugamál sín og það er eins og það fari enginn tími í það hjá þeim að vera með fjölskyldunni. „Það er yfirborðskjaftæði. Það er ekki hugsanlegt að það fari 52 helgar á ári í tómstundir utan heimilis hjá þeim.“ - En efhjónin hafa bœði áhugamál? „Það er sama. Ef viljinn er fyrir hendi þá geta bæði stundað áhugamál- ið, og samt átt helgar saman. Svo finnst mér allt of mikið gert úr þessum þætti.“ - Hafið þið hjónin sameiginleg áhugamál? „Nei.“ Ást, traust og skilningur - Á hverju finnst þér þá hjónaband byggja? „Ást fyrst og fremst, traust og skiln- ingi. Þetta afbrýðikjaftæði skil ég ekki. Ég treysti konunni minni og hef ekki ástæðu til annars. Ég treysti henni líka í fjármálum. Hjónaband gengur aldrei upp ef það á að byggja á einu sjónarmiði. Bæði verða að skilja sjón- armið hins, gefa eftir, jafnvel reyna að venja sig af því sem fer í taugarnar á hinum. Það má ekki gera of mikið úr smáatriðum, en auðvitað verða árekstrar. Hjónaband byggist líka á fjölskyldutilhneigingum, ég tel mig vera fjölskyldumann. Það byggist síst af öllu á íbúð og bíl. Ef ást er ekki fyrir hendi og byggt á efnislegum hlutum er þetta út í hött.“ - Hefur konan þín einhvern tíma haft hærri tekjur en þú? 20

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.