19. júní - 19.06.1986, Side 28
ELSKHUGAR
Forsíða bandaríska tímaritsins Ms.
frá síðastliðnu hausti. Hún sýnir okkur
að víðar en á Islandi eru karlmenn
orðnir vinsælt umfjöllunarefni í
blöðum sem einkum fjalla um jafnrétt-
ismál kvenna og karla. Og það sem
jafnréttisþenkjandi konur hafa eink-
um áhuga á eru tilfinningar og viðhorf
karla til kvenna; til ástarinnar, kynlífs,
samskipta á heimavelli og í atvinnulífi,
í sem stystu máli hvernig eða hvort
konum og körlum hefur tekist að nálg-
ast hvort annað sem manneskjur, sem
elskendur og sem vinir í því þjóðfé-
lagslega umróti sem vitundarvakning
kvenna hefur hrundið af stað. Bókin
íslenskir elskhugar er afsprengi þessa
áhuga. Hér og á næstu blaðsíðum eru
glefsur úr bókinni auk hugrenninga
um efni hennar.
44 ára lögfrœðingur og eiginmaður
- Ég er ekki frá því að áðw hafi ég
haft minnimáttarkennd gagnvart
henni vegna þess hve hún er mikill
samrœðusnillingur. Hún er svoddan
senuþjófur. Ég var það ekki nema
síður vœri. En þetta er miklu minna
vandamál í dag. Karlar eiga heldur
engan rétt á að vera einir ísviðsljós-
inu, til dœmis þegar hjón hittast.
Mér leiðast reyndar þessar hefð-
hundnu parasamkundur, finnst
þœr ekki spennandi. Ég held að
unga fólkið reyni meðvitað að berj-
ast gegn þeim. En það er ekki nóg
að vilja hreyla heldur verður jafn-
framt að reyna að nálgast hlutina
eftir nýjum leiðum. Pað gera
kvennalistakonurnar til dæmis með
því að vinna saman í grasrótarstíl.
Ég held að hverjum manni sé hollt
að kynnast slíkum vinnubrögðum.
Mér finnst betra að starfa með
konum en körlum. Pær eru miklu
hœfari til að starfa saman í Iwp.
Pœr taka ákvarðanir sameiginlega,
rœða mikið sín á milli og taka tillit
til afstöðu hverrar og einnar í
hópnum áðuren ákvörðun ertekin.
Aðdragandi ákvarðanatökunnar
getur því verið langur en hún
gengur síðan fljótt fyrir sig þegar
allar hafa fengið útráis. Konan mín
hefur einmitt tekið þátt í starfi
kvenna í stjórnmálum og ég hef
stundum undrað mig á hversu lengi
þœrspjalla um heima oggeima, allt
aðra hluti en þá sem ertt á dagskrá.
St'ðan koma dagskrárliðirnir, það
er skotið inn orði og orði og langt
frá því að unnið sé markvisst. Svo
er allt íeinu búið að taka ákvörðun,
þá er unnið hratt og markvisst svo
mér hefur fundist vinnubrögðin
vera í lagi.
Fráskilinn skólastjóri á sextugsaldri
- Á vissum tímabilum var ég bein-
línis í leit að ástarsamböndum. Pá
er maður kominn að þessu svokall-
aða fjöllyndi karla sem oft er talað
um, eða þörffyrirframhjáhald. Par
finnst mér oft að hlutirnir séu mis-
skildir. Fjöllyndi giftra karla er oft
túlkað á þann veg að þeirséu orðnir
leiðir á kerlingunni sinni og laitgi í
eitthvað yngra, að minnsta kosti
eitthvað nýtt. Þessu er áreiðanlega
oftþveröfugtfarið, nefnilegaþannig
að liún er orðin kynferðislega leið
á honum eða það finnst honum að
minnsta kosti. Petta getur bœði
komið fram i stóru og smám. Til
dœmis hœttir hún að svara kossum
umhugsunarlaust utan fjögurra
veggja. Pá fer hún að líta í kringum
sig og athuga hvort einhver sjái til
ogþví um líkt. í stað þess að vera til
í kynmök náinast hvar sem er og
livenær sem erþáfinnast alls konar
meinbugir varðandi tíma og að-
stæður: það er of kalt, það er of
þröngt, það þyrfti að fara í bað
áður og svo framvegis.
28