19. júní


19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 35

19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 35
Eggert Þorvaröarson HVORKI VERRA NÉ BETRA - rætt við Eggert Þorvarðarson hjá Stjómunarfélagi fslands Eggert Þorvarðarson hóf síðastlið- inn vetur störf hjá Stjórnunarfélagi Islands, en á þeim bæ ræður Lára Ragnarsdóttir ríkjum. Þó Eggert hefði ekki starfað lengi undir stjórn Láru þegar blaðamaður hafði samband við hann, lét hann til leiðast að tjá sig um þessa tiltölulega óvanalegu reynslu. Fyrsta spurningin kom reyndar frá viðmælandanum sjálfum, sem virtist þeirrar skoðunar að ef til vill væri verið að gera of mikið mál úr sjálfsögðum hlut. „Á það að skipta nokkru máli hvort maður hefur konu eða karl sem yfirmann?“ Eggert komst hins vegar ekki upp nieð það til lengdar að snúa hlutverkunum við og var spurður um eigin heimilishagi. „Ég er giftur og á einn dreng, sem er tveggja ára. Kona mín er í hálfu starfi hjá Rekstrartækni. Hún er á lægri launum en ég. Það gerir það að verkum að hagstæðara er fyrir okkur að hún vinni aðeins hlutastarf." - Gœtir þú hugsað þérað vera heima með drengnum, ef eiginkonan hefði sömu tekjur og þú? „Já, ég gæti vel hugsað mér það, að minnsta kosti hálfan daginn. Reyndar gæti ég bara mjög vel hugsað mér þetta fyrirkomulag! Það eru margir kostir við það að vera heima hluta úr degi. þá er t.d. hægt að fara í gönguferð niður í bæ þegar vel viðrar, eða keyra upp í Blá- fjöll og taka sleðann með.“ - Myndi það ekki koma niður á heimilisverkunum, sem óneitanlega þarfað sinna líka? „Þau þarf bara að skipuleggja vel. Ef það er gert, gengur þetta allt auð- veldlega upp.“ — En svo við snúum okkur að tilefni viðtalsins, Eggert. Hvernig er að vinna undir stjórn konu? „Ég segi nú bara aftur: Á þetta ekki að vera eins? En í fúlustu alvöru, þá verð ég ekki var við að það sé á neinn hátt annað en að vinna undir stjórn karlmanns. Munurinn er hreinlega enginn, að því er ég fæ séð. Það er hvorki verra eða betra að vinna hjá Láru en hjá þeim körlum sem ég hef haft sem yfirmenn. Það fer eftir persónunni en ekki kyn- inu, hvernig yfirmaður reynist." - Verður þú var við undrun eða önnur viðbrögð í þá veru, þegar fólk fréttir um kyn yfirmpnns Stjórnunar- félagsins? „Nei, ég hef alls ekki orðið var við neina undrun í því sambandi." - Áttu jafnauðvelt með að bera virð- ingu fyrir og fara eftir fyrirskipunum konu og karls á vinnustað? „Já, það held ég. Ég ber engu minni virðingu fyrir mínum núverandi yfir- manni en þeim, sem ég hef áður unnið hjá. Ég virði fyrirmæli hennar full- komlega. Það er ekkert að því að kona sé yfirmaður og stjórni - svo fremi að hún viti nákvæmlega hvað hún er að gera, auðvitað." - Þú finnur sem sagt alls ekki fyrir neinum mun á kynjunum í yfirmanns- stöðum? „Ég er kannski ekki frá því að kona leggi sig meira fram við að kynnast og fylgjast með fjölskylduhögum starfs- manna. Hún er „mannlegri" á þann hátt, ef svo má að orði komast. Man kannski nafn maka manns, kyn og aldur barnanna, og þess háttar.“ I vestfirska' FRETTABLASID er landsmálablað sem kemur út á fimmtudögum gefur innsýn í lífsbaráttu fólks, sem býr strjált í harðbýlum landshluta er ekki ríkisstyrkt blað er ekki tengt neinum stjórnmálaflokki og á gengi sitt allt undir vinsældum sínum meðal lesenda svo og því áliti, sem það nýtur hjá auglýsendum er sent í pósti til áskrifenda um land allt Auglýsinga- og áskriftarsími blaðsins eru 94-4011 94-3223 og 94-3100 utan almenns vinnutíma »i ■»■■■■»■■■■■»»■■» j [ vestfirska 1 FRÉTTABLASIS PÓSTHÓLF 33 400 ÍSAFIRÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.