19. júní


19. júní - 19.06.1986, Síða 44

19. júní - 19.06.1986, Síða 44
HÉR OG ÞAR • HITT OG ÞETTA • HÉR OG ÞAR • Fyrir framtaksamar konur / Skyldu ekki margar konur víða um land luma á ýmsum snjöllum hugmyndum um framleiðslu eða þjónustu af einhverju tagi sem þær blóð- langar að reyna að koma í framkvæmd, stofna til þess eigið fyrirtæki og verða þar með sjálfs sín herrar (eða dömur)? Eru ekki líka margar í þeim sporum að komast ekki lengra í eigin starfi eða bara orðnar leiðar á að láta aðra segja sér fyrir verkum? I nágrannalöndum okkar, einkum Svíþjóð og Noregi, hefur markvisst verið unnið Sjónvarp: Þar sem karlarnir tala að því á allra síðustu árum að örva konur til að koma á fót eigin atvinnurekstri. í Svíþjóð hafa verið haldin námskeið, bæði stutt og löng, fyrir þær sem telja sig búa yfir góðri hugmynd eða hafa þegar ráðist í stofnun eigin fyrirtækis. Það er Ut- vecklingsfonden í Svíþjóð (einskonar Byggðasjóður) sem staðið hefur fyrir starf- semi þessari og styrkt. í vetur hefur verið unnið að undirbúningi og athug- unum á því að koma svip- uðu starfi af stað hér á landi. Frumkvæðið kemur frá nokkrum starfsmönnum Iðntæknistofnunar Islands og iðnaðarráðuneytisins en aðilar að undirbúningsstarf- inu er eru auk þess Jafnréttis- ráð, Framkvæmdanefnd um launamál kvenna og KRFÍ. 25. apríl sl. var haldinn fræðslufundur um fram- kvæmdina á þessum málum hjá frændþjóðunum. Þar hélt Margareta Bergmark, ráðgjafi hjá Utvecklings- fonden í Nyköping í Sví- þjóð fróðlegt erindi um til- högun námskeiðanna í landi sínu og var áhugi fundar- gesta greinilegur. Einnig miðlaði Ellen Sjödin frá Þrændalögum í Noregi undirbúningshópnum af reynslu Norðmanna, en þeir reka sérstakan skóla fyrir þá sem hyggja á eigin rekst- ur auk námskeiðahalds líkt og Svíar. Árangur þessa starfs er þegar að sjá dagsins Ijós. Fyrsta námskeiðið fyrir konur fer fram í lok maímán- aðar hjá iðnrekstrardeild Iðntæknistofnunar. JMG Norskt kvennaútvarp Árið 1984 var gerð könn- un á því í Noregi hver skipt- ing kynjanna væri í sjón- varpsfréttum norska sjón- varpsins. Könnunin stóð í tvær vikur og var gerð þannig að athugað var hlutfall kvenna sem fréttamanna og við- mælenda og í öðru lagi hve lengi konurnar töluðu. í ljós kom að hlutfall kvenna sem fréttamanna var 8% og sem viðmælenda 14%. Sam- tals töluðu allar þessar konur í 11 mínútur á meðan karlarnir töluðu í tvo tíma og 24 mínútur. í heildina talið voru 87,5% þeirra sem töluðu í fréttaþættinum karlar, en 12,5% konur. Þess má geta að fjórðungur af þessum 12,5% var ein og sama konan, nefnilega Gro Flarlem Brundtland! Pýtt og endursagt - vd. í október 1982 stofnsetti hópur kvenna útvarpsstöð- ina RadiOrakel í Osló í Noregi. Konurnar höfðu enga reynslu af vinnu við útvarp. Hugmyndin að kvennaútvarpi kom upp í hópi sem vann að því að setja á stofn menningarmið- stöð kvenna og í upphafi var stöðin fjármögnuð með fé frá kvennamenningar- hátíð sem haldin var 1979. Rita Westvik, sem var útvarpsstjóri RadiOrakel fyrstu tvö starfsárin, segir svo frá í viðtali við norska blaðið Kvinner í Media: „Þegar við stofnuðum RadiOrakel ákváðum við að við vildum hafa sam- vinnu við karla en að konur skyldu alltaf vera í meiri- hluta, bæði sem starfsmenn og stjórnendur. Við vildum kunngjöra styrk kvenna, hugmyndaauðgi, framtak og framfarir... RadiOrakel er staður fyrir stelpur sem óska eftir reynslu af fjöl- miðlum á öðruvísi hátt. Línan sem við gáfum okkur var „Konur í hversdagslíf- inu, í baráttu og gleði“. Við létum áhugann ráða í efnis- vali, spurðum okkur hvað okkur líkaði og prófuðum svo að framkvæma það.“ Islenskar konur, er þetta ekki möguleiki sem við ættum að athuga nánar? Pýtt og cndursagt úr Kvinner i Media - vd. Iþrótta- fréttaritun - við hæfi kvenna? í norska blaðinu Kvinner i Media er ýmislegt for- vitnilegt, og eftirfarandi frásögn er einmitt þaðan: Þegar fyrsta konan sótti um inngöngu í Félag norskra íþróttafréttaritara árið 1973, olli það miklum taugatitringi innan félags- ins. Staðfesting á umsókn- inni var látin bíða í lengstu lög. Ástæðan var sú að venja var að sýna klám- myndir á fundum félagsins. En að lokum var komist að þeirri niðurstöðu að félagið gæti ekki verið þekkt fyrir að útiloka metnaðargjarnar konur sem vildu standa jafnfætis körlum á þessu sviði sem öðrum. Eftir vandræðalega reynslu er fyrsta konan sat fund í félaginu var bundinn endir á þessa sérstöku kvikmynda- hefð. í dag eru fjórar konur í félaginu og þó nokkrar í viðbót starfa á héraðs- og bæjablöðum. Öllum er þeim sagt að íþróttafrétta- ritun sé ekki fyrir kvenfólk. „Strákar samþykkja slíkt ekki“ er ástæðan sem þeim er gefin. Önnur afsökun sem er gjarnan notuð er að íþróttamennirnir vilji ekki láta konur taka við sig viðtöl. Starfandi konur í faginu segja frá því að íþróttamennirnir snúi sér oft fyrst til ljósmyndarans í þeirri trú að blaðakonan sé bara kærasta sem hafi fengið að fljóta með... l’ýtt og endursagt úr Kvinner i Media - vd. 44
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.