19. júní


19. júní - 19.06.1986, Page 60

19. júní - 19.06.1986, Page 60
OG UNNIÐ STÓRVIRKI Rætt við Láru V. Júlíusdóttur og Elínu Pálsdóttur Flygenring Síðastliðið ár var lokaár kvennaáratugar Sameinuðu þjóð- anna og var þess minnst á margvíslegan hátt hér á landi, eins og flestum lesendum 19. júní er vafalaust enn í fersku minni. I hvert skipti sem einhverjir viðburðir áttu sér stað af þessu tilefni var þess jafnan getið að þeir væru að tilstuðlan eða frumkvæði ’85-nefndarinnar. Þannig var meðal annars haldin viðamikil listahátið kvenna, gefið út veglegt heimilda- rit um tímabilið frá 1975, haldinn fjöldafundur á Kvenna- frídaginn og sýning á störfum kvenna í Kvcnnasmiðjunni í heila viku, allt í nafni '85-nefndarinnar. Og hvað er svo þessi nefnd eiginlega, hvernig til komin og samansett? Til að svara þessum spurningum og fáeinum öðrum um starfsemi þessarar afkastaniiklu nefndar leitaði blaðið til tveggja þeirra fimm kvenna er skipuðu fram- kvæmdahóp ’85-nefndarinnar, þeirra Elínar Pálsdóttur Flygenring framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs og Láru V. Júlíusdóttur lögfræðings Alþýðusambands íslands og ný- kjörins formanns KRFÍ. Auk þeirra tveggja skipuðu hóp- inn María Pétursdóttir skólastjóri, Sólveig Ólafsdóttir lög- fræðingurog Jóhanna Sigurðardóttiralþingismaður. Óhætt er að fullyrða að starf ncfndarinnar mæddi mest á þessum fimm konum sem lögðu góðu máli lið í ómældri sjálflioða- vinnu og stýrðu framkvæmdum af mikilli ósérhlífni og dugnaði. Þœr Elín og Lára voru fyrst spurðar hvernig hugmyndin um þessa nefnd hefði fœðst og hverjir áttu frumkvœði að stofnun hennar. Elín varð fyrir svörum: „Aðdrag- andinn var sá að árið 1983 setti félags- málaráðuneytið á stofn undirbúnings- nefnd til að hafa með höndum undir- búning kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi árið 1985. Strax vaknaði sú hugmynd í nefndinni að gera eitthvað eftirminnilegt hér á landi í tilefni síðasta árs kvennaáratugarins. Var rætt um í hvaða mynd slíkt gæti orðið og ákveðið að kalla saman full- trúa frá áhugamannafélögum kvenna, stéttarfélögum þeirra og kvenfélögum stjórnmálaflokkanna. Þetta mun hafa verið í apríl 1984. Á þessum fundi ríkti mikill áhugi á stofnun sérstakrar nefndar vegna aðgerða ársins 1985 og var undirbúningshópi fengið í hendur það verkefni að móta frekari hug- myndir um hana. Um miðjan ágúst var því verkefni svo lokið.“ Lára og Elín í spjalli við 19.júní. (I.jósm. AFG). 60

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.