19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 67
Friðarávarp íslenskra kvenna
Við viljum
undirhúa jarðveg friðarins með því að stuðla að réttlœti, vináttu og auknum
samskiptum milli þjóða.
Við viljum
að fjármagni sé varið til />ess að seðja luingur sveltandi fólks, til heilsugæslu
og menntunar, en ekki til vlghúnaðar.
Við viljum
leggja áherslu á uppeldi til friðar með því að sporna við ofheldi í kvikmyndum,
myndböndum og stríðsleikföngum.
Við viljum
að tslendingar leggi lið sérhverri viðleitni á alþjóðavettvangigegn kjarnorkuvopnum
og öðrum vígbútnaði.
Við viljum
gheða vonir manna um betri heim og bjartari framtíð án kjarorkuvopna
og gereyðingarhcettu.
Við viljum
ekki að ísland verði vettvangur aukins vígbútnaðará norðurslóðum og höfnum kjarnorku-
vopnum á landi okkur og hafinu timhverfis, hvort sem er áfriðar- eða stríðstímum.
Við viljum
frið sem grundvallast á réttlœti, frelsi og umhyggju í mannlegum samskiptum.
Friðarávarpið sem nœr37.000 íslenskar konur undirrituðii íjúní 1985.
tilefni söfnunarinnar var ennfremur
gert sérstakt plakat með tveimur
höndum, konu og barns, og á stóð
„Framtíð komandi kynslóða er íokkar
höndum“. Auk þess voru gerðir bolir
nreð friðardúfunni og áletruninni
„Friður ’85“.
Þetta var fjárfrek aðgerð, einkum
auglýsingarnar, og var í upphafi sent
bréf til fjölmargra stofnana, fyrirtækja
og félaga og þau beðin um að veita
fjárstuðning. Brugðust margir aðilar
vel við þessari málaleitan og varð
Flugfreyjufélag Islands fyrst til að
styðja aðgerðina. Bæði ríki og sveitar-
félög veittu ríflegan stuðning eða um
280 þúsund krónur en aðgerðin kost-
aði alls um 470 þús. kr.
Friðarhreyfing ísl. kvenna hefur
haft skrifstofu á Hallveigarstöðum við
Túngötu og þar var miðstöð söfnunar-
innar. Þangað gátu konur snúið sér til
að fá lista og upplýsingar. Þar var hcitt
kaffi á könnunni. Skrifstofan var opin
allan daginn, en sínraskortur háði
starfinu nokkuö þar sem við höfðum
aðeins einn síma.
Beðið var fram á síðustu stundu
eftir listum og staðfestingu á loka-
tölum, allt fram á kvöld 11. júlí, en
sendinefndin til Nairobi hclt utan dag-
inn eftir. Voru þá undirskriftirnar
36.239, en fleiri áttu eftir að berast. Á
forsíðu cru þrjú tákn: merki ’85-
nefndarinnar, merki Friðarhreyfingar
ísl. kvenna og merk! kvennaárs S.Þ.
Listarnir vógu 19 kíló er þeim var
pakkað inn í fjóra pakka í Kaup-
mannahöfn á leiðinni til Kenya.
Afhending undir-
skriftalistanna
Afhendingin fór fram á Kvennaráð-
stefnu S.Þ. 19. júlí kl. 17 að staðar-
tíma. Tók frú Florence Pomes fulltrúi
framkvæmdastjóra S.P. við listunum,
en hún hefur með afvopnunarmál að
gera. Þessi tilhögun afhendingarinnar
var fyrir milligöngu utanríkisráðu-
neytisins hér heima. Við aflrending-
una gerði ég grein fyrir tilgangi söfn-
unarinnar og inntaki friðarávarpsins
og lét frú Pomes þau orð falla að friðar-
ávarpið væri mjög í anda S.Þ. í fram-
kvæmdaáætluninni sem samþykkt var
á ráðstefnunni má finna nær öll atriði
sem fram koma í ávarpinu, auk fleiri
atriða, eins og urn friðarfræðslu, upp-
lýsingaskyldu stjórnvalda og viður-
kenningu á friðarstarfi kvenna.
Viðstaddar afhendinguna voru
einnig María Pétursdóttir, Esther
Guðmundsdóttir og Guðríður Þor-
steinsdóttir sem hafa starfað í Friðar-
hreyfingu ísl. kvenna, auk íslendinga
sem búsettir eru í Nairobi.
í bréfi til framkvæmdastjóra S.Þ.,
Javier Pérez de Cuéllar, sem fylgdu
undirskriftalistunum segirm.a.: „Með
friðarávarpinu og undirskriftunum
vilja íslenskar konur ítreka kröfuna
um frið og afvopnun í heiminum og
láta í ljós þá skoðun að stefnubreyting
verði að eiga sér stað, ef takast á að
tryggja frið og réttlæti í veröld án
kjarnorkuvopna. Viö bendum á að
þeim peningum sem nú er varið í víg-
búnað sé betur varið til menntunar,
heilsugæslu og til að seðja hungur
sveltandi fólks í heiminum. Við heit-
um því á yður að þér beitið áhrifum
yðar og kröftum til að finna raunveru-
legar leiðir til afvopnunar í heiminum
og heitum yöur stuðningi íslenskra
kvenna við slíka viðleitni." Blöð í
Nairobi greindu frá afhendingunni og
fréttatilkynningu frá Friðarhreyfingu
íslenskra kvenna var dreift á Forum
'85, óháðu ráðstefnunni, þar scm
saman voru komnir fulltrúar fjöl-
margra kvennasamtaka alls staðar úr
heiminum.
Þennan sama dag, 19. júlí, hér
heima kl. 17 að staðartíma, afhenti
Margrét S. Björnsdóttir Geir Hall-
grímssyni utanríkisráðherra friðar-
ávarpið og staðfestingu þcss að 36.700
konur hefðu skrifað undir það. Við-
staddar voru, auk Margrétar, konur
frá Friðarhreyfingu íslenskra kvenna
og '85-nefndinni.
Ljósrit voru tekin af öllum undir-
skriftalistunum. Var samþykkt á fundi
í Miðstöð Friðarhreyfingar ísl. kvenna
að fara þess á leit við Önnu Sigurðar-
dóttur að hún veitti viðtöku Ijósriti af
undirskriftum 36.841 konu undir
friðarávarpið til varðveislu í Kvenna-
sögusafni íslands. Sú afhending fór
fram 8. mars 1986 á alþjóðadegi
kvenna og á alþjóðlegu friðarári S.Þ.
Viðstaddar voru konur úr friðarhreyf-
ingunni.
Þegar upp var staðið reyndust undir-
skriftirnar tæplega 37.000 senr þýðir
að nær önnur hver kona hefur skrifað
undir Friðarávarp íslenskra kvenna
þennan júnímánuð í fyrra. Þetta
verður að teljast ágætur árangur.
Undirskriftasöfnunin undir Friðar-
ávarp íslenskra kvenna er stærsta
aðgerð íslenskra kvenna í þágu friðar
fram til þessa.
67