19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 72
Um listahátíð
KVENNA
Hinn frægi „kvennaáratugur" hefur
vakið marga til umhugsunar um fram-
lag kvenna til íslenskra lista, einkum
og sérílagi bókmennta og tónlistar.
Einhverra hluta vegna hafa sumar
aðrar listgreinar, þ.ám. leiklist og
myndlist, oröiö utangátta í þeirri um-
ræðu. Umræöa um myndlist íslenskra
kvenna hefur koðnað niður á einhvers
konar umkvörtunarstigi, þar sem mest
hefur borið á sparðatíningi um niður-
drepandi umsagnir karla um list
kvenna, eða niðurlægjandi ummæli
þeirra um „húsmæður“ og „kvenlcg-
heit“.
Dæmi um slíka smámunasemi er að
finna í bók um stöðu íslenskra kvenna
á aðskiljanlegum sviðum atvinnu- og
menningarlífs, sem út kom fyrir síð-
ustu jól. í annars fróðlegri grein unt
myndlistarmenntun íslenskra kvenna
Hluti úr mynd verki
Huldu Hákonar-
dóttur. (Ljósm.
Svala Sigurleifsd.).
þarf höfundur, Svala Sigurleifsdóttir,
að snoppunga karlrembur í gagnrýn-
endastétt, og nefnir til myndlistarkonu
sem á að hafa fengið svo neikvæða
umsögn um fyrstu sýningu sína, að
hún gaf myndlistariðkun upp á bátinn.
í greininni er gefið í skyn, að
umrædd listakona hafi ekki borið sitt
barr eftir það. Hún er nú einn virtasti
grafíski hönnuður okkar og rekur
stærstu auglýsingastofu landsins. En
það þykir höfundi greinarinnar ekki
umtalsvert.
En þetta er útúrdúr, eins og raunar
öll umræða um myndlist kvenna hér á
landi. Vilji einhver gefa henni gaum
fyrir alvöru, væri t. d. fengur aðfrekari
vitneskju urn nokkrar konur, sem
fengust við að mála myndur upp úr
aldamótum: Þóru P. Thoroddsen,
Elínborgu Thorberg, Ingibjörgu
Briem, Sigríði Gunnarsson og Sigríði
J. Sigurðardóttur. Listasafn íslands á
verk eftir þær allar.
Thoroddsen, Thorberg, Briem.
Nöfnin gefa til kynna, að dætur
íslenskra embættismanna, kaup-
manna og gildra bænda hal'i staðið
betur að vígi en önnur íslensk ung-
menni, þegar að myndlistarmenntun
kom. Á „betri heimilum" var teikning,
ásamt hannyrðum, talin til kvenlegra
dyggða langt fram eftir þessari öld.
Efnafólk og embættismenn á íslandi
Verk Erlu Þórarins-
dóttur á Kjarvals-
staðasýningunni.
(Ljósm. Svala Sigur-
leifsd.).
Grein: Aðalsteinn Ingólfsson
72