19. júní


19. júní - 19.06.1986, Page 77

19. júní - 19.06.1986, Page 77
METBÓK 18 MANAÐA SPARIBÓK SEM RÍS UNDIR NAFNI 'BÍNAÐARBANKI ÍSLANDS taka fyrir nokkrar myndlistakonur og segja þetta voru uppáhöldin; það er lærdómsríkt að skoða jafnvel það sem manni fellur alls ekki. Ogeins að fylgj- ast með því hvernig skoðanir breytast sí og æ. Dæmi: Þegar ég sá verkin sem Erla Þórarins var með á þessari sýn- ingu í fyrsta sinn, féllu mér þau alls ekki. Það sem fór í taugarnar á mér, var aðallega hve sundurleit þau voru. Síðan horfði ég á þau nauðbeygð á tvennum tónleikum og komst að því að þau voru ekki eins sundurleit og mér litust þau fyrst. Og komst líka að því að það var eitthvað í þessum verkum sem gerði þau betri því lengur sem horft var á þau. Sem sagt for- dórnar borga sig ekki! Par til dauðinn aðskilur okkur Og hvað hafði svo pressan að segja um þessar sýningar? Jú takk, eiginlega aðallega allt gott nenra þetta hefð- bundna að aldrei hafa karlar orðið varir við það að íslenskunr myndlista- konum hafi verið mismunað á grund- velli kynferðis, blablabla. Misnrun- unin í t.d. blaðaumfjöllun er ef til vill núna helst fólgin í því vægi sem ríkir á milli umfjöllunar um myndlist karla og kvenna. Nærtækt dæmi úr DV. Á hálf- síðu í DV þann 30. september er fjallað um Kjarvalsstaðasýninguna. Á hinni síðu opnunnar er viðtal við listamann og gæti nú einhver látið sér detta til hugar að þar væri komið viðtal við einhverja þá sem brilleraði á umræddri sýningu t.d. Arngunni Ýr. Nei, viti menn! Þar er komið viðtal við Magnús Tómasson vegna framlags hanstil Listahátíðar kvenna. Vinurinn hafði nefnilega dustað rykið af gömlum verkum sem hann setti upp í Gallerí Grjóti og nefndi sýninguna Konan til gagns og gamans. Og þar sem fyrirsögnin á umfjölluninni urn kvennasýninguna var í tvídálk þá nægði ekki minna en fimm dálkar fyrir fyrirsögnina „Aðskilnaðarstefna í list- um“ með stríðsæsingaletri. Og hvað hafði svo Magnús að segja? Jú, svona splunkuný gullkorn: „Ég held að þetta kvennastand hafi verið llutt hingað senr tíska, en þetta er frjálst land. Þó mundi eitthvað heyrast ef karlmenn héldu sýningar og óskuðu eingöngu eftir karlmönnum og héldu þær ein- göngu vegna þess að þeir væru karl- menn. En þetta líður sjálfsagt hjá.“ Jafnvel öðlingi eins og Magnúsi er hægt að ýta út í svona rugl og því þarf ekki að furða sig á því þótt aðrir séu ruglaðir. Konur vona sjálfsagt flestar að ruglið líði hjá, en þær bíða alveg örugglega ekki aðgerðarlausar á meðan. 77

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.