19. júní - 19.06.1986, Side 89
Kvennasmiðjan
KRFI tók þátt í Kvennasmiðjunni í
Seðlabankahúsinu 24.-31. október sl.
Félagiö fékk bás með Kvenfélagasam-
bandinu. Þórhildur Jónsdóttir auglýs-
ingateiknari sá um að útbúa skilti sem
hengd voru upp, annars vegar með for-
síðum 19. júní og hins vegar texta úr
stefnuskrá félagsins. Pá var útbúinn
kynningarbæklingur um félagið og
honum dreift á sýningunni. 12 manns
gengu í félagið á meðan á sýningunni
stóð og var þeim sent bréf þar sem þau
voru boðin velkomin til starfa. Mjög
ánægjulegt var að taka þátt í þessari
sýningu, margir komu í bás félagsins og
auðvelt var að fá félagsmenn til starfa og
kynna félagið. Þess má geta að KRFl
lánaði húsnæði sitt undirbúningshópi og
starfsmanni Kvennasmiðjunnar endur-
gjaldslaust.
vara. Ráðgjafanefndin vinnur að þeim
verkefnum sem til hennar er beint frá Jafn-
réttisráði og einnig hefur hún frumkvæði
að verkefnum og úrvinnslu þeirra að
fengnu samþykki ráðsins. Verkefni ráð-
gjafarnefndar tengdust á sl. ári skólamál-
um, og bar þar hæst vikulanga dagskrá um
skóla og jafnrétti í samvinnu við Náms-
gagnastofnun.
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir átti sæti í
Mæðrastyrksnefnd fyrir KRFÍ. Fjáröflun
nefndarinnar var með hefðbundnum hætti,
mæörablómið var selt á Mæðradaginn og
peningarnir notaðir fyrir eldri konur til að
fjármagna vikudvöl að Hvanneyri í hús-
mæðraorlofi.
Valborg Bentsdóttir sótti aðalfund
Landverndar, sam haldinn var í Alviðru í
Arnessýslu 9. nóvember 1985. Þorbjörg
Daníelsdóttir sótti f.h. félagsins fund
Landssambandsins gegn áfengisbölinu 18.
febrúar sl., þar sem fjallað var um það
livert stefndi í vímuefnamálum.
Jónína Margrét Guðnadóttir sótti aðal-
fund Sambands ísl. samvinnufélaga, sem
haldinn var að Bifröst í Borgarfirði 13.-14.
júní sl., en KRFI var boðið að senda full-
trúa á fundinn, þar eð fjallað var sérstak-
lega um þátttöku kvenna í samvinnuhreyf-
ingunni.
Þær Júlíana Signý Gunnarsdóttir og
Þóra Brynjólfsdóttir eiga sæti í Áfcngis-
varnarnefnd kvenna í Reykjavík, og Hafn-
arfirði fyrir hönd félagsins, og hefur starf
Félagsgjöld
Á undanförnum árum hafa félags-
gjöld innheimst mjög illa og hefur það
verið afar slæmt lyrir fjárhag lélagsins,
þar sem styrkur úr ríkissjóði cr mjög lít-
ill eða um 20 þúsund krónur á þessu ári.
Félagsgjaldið í ár er kr. 600 fyrir ein-
staklinga og kr. 900 fyrir félög.
nefndarinnar verið með líku sniði og
undanfarin ár. Börn nutu sumardvalar á
vegum nefndarinnar og jólagjafir voru
sendar á Lögreglustöðina við Hverfisgötu
og Gistiskýlið við Þingholtsstræti.
Guðrún Gísladóttir var fulltrúi KRFÍ í
Miðstöð Friðarhreyfingar íslenskra kvenna
framan af árinu, en þá tók við Jónína Mar-
grét Guðnadóttir og til vara Júlíana Signý
Gunnarsdóttir. Starf Friðarhreyfingar-
innar áriö 1985 mótaðist einkum af þátt-
töku hreyfingarinnar í '85-nefndinni,
skipulagi og framkvæmd undirskriftasöfn-
Ú tgáfustarfsem i
Útgáfa fréttablaðs er fastur liður í
starfsemi félagsins. Hefur Jónína Mar-
grét Guðnadóttir ritstýrt flestum frétta-
bréfunum og Þórhildur Jónsdóttir séð
um útlit.
19. júní, ársrit félagsins kom að
vanda út í júní 1985. Meðal efnis í blað-
inu var fjallað um konur og heilbrigði,
rætt var við konur í tilefni af lokum
kvennaáratugar S.Þ. og fjallað um
kvennaárið og kvennaáratuginn ásamt
margvíslegu öðru efni. Ritstjóri var
Fríða Björnsdóttir, fjármálastjóri Erna
Bryndís Halldórsdóttir og auglýsinga-
stjóri Júlíana Signý Gunnarsdóttir.
Sigríður Erlendsdóttir sagnfræðingur
vinnur nú að söguritun KRFl og miðar
verkinu vel. Enn er óvíst um hvenær
saga KRFl vcröur gcfin út, en ljóst er að
verkið er vandasamt og viðamikið.
unar undir friðarávarp kvenna í júní 1985,
sem sagt er frá í blaðinu.
Dagana 15.-27. júlí sl. var haldin þriðja
Kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í
Nairobi í Kenya. Hafði KRFÍ tilnefnt
formann félágsins sem fulltrúa í sendinefnd
Stjórn
Á aðalfundinum 17. marssl. lét Esther
Guðmundsdóttir af formennsku í félag-
inu eftir 5 ára dygga forystu. Voru henni
færðar þakkir félagsins.
Nýr formaður var kjörin Lára V. Júlí-
usdóttir, en aðrar í stjórn KRFI eru:
Arndís Steinþórsdóttir varaformaður,
Jónína Margrét Guðnadóttir ritari,
Erna Bryndís Halldórsdóttir, gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Ásthildur Ketils-
dóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Áslaug
Brynjólfsdóttir, Valgerður Sigurðar-
dóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Kristín Jónsdóttir og Dóra Guömunds-
dóttir. Varanienn: Edda Hermanns-
dóttir, Dóra Eyvindardóttir og Sólveig
Ólafsdóttir.
íslands. Á bls. 68 segir Esther Guðmunds-
dóttir frá starfsemi á ráðstefnunni og
framkvæmdaáætlun er þar var samþykkt.
Islenska sendinefndin skilaði formlega af
sér á opnum fundi í Litlu-Brekku í nóvem-
ber sl.
í Nairobi hittust konur í Alþjóðasam-
tökum kvenréttindafélaga (IAW) á óform-
legum fundi. en þar voru staddar um 30
konur frá 20 löndum sem aðild eiga að sam-
tökunum.
Dagana 25.-26. september sl. var hald-
inn fundur í Reykjavík á vegum jafnréttis-
nefndar norrænu ráðherranefndarinnar.
Efni ráðstefnunnar var framkvæmdaáætlun
S.Þ. sem samþykkt var á kvennaráðstefnu
S. Þ. í Nairobi og hvernig hægt væri að haga
norrænu samstarfi á sviði jafnréttis á
grundvelli þessarar framkvæmdaáætlunar.
Samþykkt var að halda norrænt Forunt árið
1988 eða 1990. Formaður og varaformaður
sóttu fundinn af hálfu KRFÍ. Á þessum
fundi hittust formenn norrænu kvenrétt-
indafélaganna, en þeir höfðu einnig hist í
Nairobi skömmu áður. Rætt var um nauð-
syn þcss að koma á meira samstarfi þessara
félaga, og ákveðið að efna til formlegs for-
mannafundar í Svíþjóð. Þessi fundur var
síðan haldinn 7.-8. desember sl. í Stokk-
hólmi.
Umsagnir og greinaskrif
KRFI fékk til umsagnar frá Alþingi
eftirfarandi:
1. Tillögu til þingsályktunar um réttar-
stöðu heimavinnandi fólks, 392.
mál.
2. Frumvarp til laga um lífeyrisréttindi
húsmæðra, breytingu á lögum nr. 55
frá 9. júní 1980 um starfskjör launa-
fólks og skyldutryggingu lífeyrisrétt-
inda.
3. Tillögu til þingsályktunar um þátt-
töku sjúkrasamlaga í kostnaði vegna
getnaðarvarna.
Frá íslandsdeild Norðurlandaráðs
fékk félagið til uinsagnar þingmannatil-
lögu nr. A 708/s um sex stunda vinnu-
dag.
KRFÍ sendi frá sér grein í Morgun-
blaðið í nóvember sl. um skattamál.
Tilefnið var grcin Gunnars G. Schram
alþingismanns sent hann kallaði
„Jöfnun á skattbyrði hjóna" sem birtist
í sama blaði. Þá sendi félagið frá sér
áskorun í desember sl. til sjálfstæðis-
manna í Reykjavfk þess efnis að breyta
uppröðun á framboðslista flokksins við
næstu sveitarstjórnarkosningar, en
konur höfðu komið mjög illa út úr próf-
kjöri í flokknum skömmu áður. Beðið
var um tillögur KRFI um efni í fram-
kvæmdaáætlun jafnréttismála til næstu
fjögurra ára. Hefur félagið nýlega sent
þessar tllögur til Jafnréttisráðs ásamt
stefnuskrá félagsins.
89