Sameiningin - 01.08.1898, Page 4
—68—
síðastliðið sumar, og þá var Melanktonssöfnuðr þar myndaðr, hina í
Apríl í vor. Enn fremr ferðaðist hann í September til Selkirk og
þaðan til Mikleyjar og Nýja Islands-þyggðanna á meginlandi. I þessu
byggðarlagi er svo sem kunnugt er prestakall séra Odds V. Gíslasonar,
en síðan trúmálaruglingrinn kom þar upp um árið, nokkru áðr en
séra Oddr kom frá Islandi og tðk þar við prestsþjónustu, hefir mikill
liluti fðlksins staðið utan kirkju og safnaðarlíf kirkjumannanna víð-
asthvar verið mjög veikt. Til þess að styðja séra Odd í starfi hans
og vekja kristilegan og kirkjulegan áhuga hjá Ný-íslendingum yflr
höfuð fðr séra Jðnas ferð þessa, og hefir vafalaust eins mikill árangr
orðið af ferðinni eins og við varð búizt eftir því, sem á stðð. Af
skýrslu þeirri, er séra Jðnas ritaði um þetta missíónar-starf og sendi
,,Sameiningunni'‘, má sjá, að hugir margra Ný-íslendinga hneigjast
miklu meir í kirkjulega átt en margir munu hafa búizt við eftir því
ýmsa, sem þar liefir um liðin ár á dagana drifið, og það eigi að eins
meðal þeirra, er taldir eru til hinna lútersku safnaða þeirra byggða,
heldr líka í hðpi þeirra, er fyrir utan standa. Einn hinna eldri safnaða
þar, Fljötshlíðarsöfnuðr, hafði um tvö undangengin ár legið í d.áii
en nú töku um 70 manns sig til og endrreistu hann. I Isafoldarbyggð,
þar sem aldrei hefir verið nein safnaðarskipan, hét fðlk því, að vinna
bráðlega að myndan safnaðar; og bæði í Breiðuvík og á Gimli tjáðu
menn sig sömuleiðis hlynnta safnaðarmyndan. Ekki verðr séð af
skýrslu séra Jönasar, að neinum mötmælum hafi verið haldið fram af
hálfu utansafnaðarmanna í Mikley gegn eignarrétti lúterSka safnaðar-
ins til kirkjunnar þar. Og bæði þar og annarsstaðar í Nýja Islandi
var séra Jðnasi tekið mjög vel af almenningi. Lakast var, að hann
fékk ekki í ferðinni tœkifœri til að heimsœkja fölk í syðra hluta
Víðinesbyggðar, þar sem þö er einn smásöfnuðr kirkjufélaginu tilheyr-
andi. í Selkirk prédikaði séra Jðnas bæði á ferðinni fram og aftr
og talaði við fðlk um kirkjumál. Og nú í Maí, rétt áðr en hann hélt
á stað í ferð sína til Islands, heimsðtti hann Selkirk-búa einnig.
Söfnuðrinn þar sleit í fyrra prestsþjönustusambandi við séra Odd,
þótt hann stundum hafi prédikað þar síðan. En hinsvegar hefir
þess verið leitað af Söfnuðinum við séra Jðnas, að hann vildi gjör-
ast þar reglulegr prestr, án þess þð að hann enn sem komið er hafi
sóð sér fœrt að taka þeirri köllun.
í haust, í September, réðst séra N. Steingrímr Þorláksson í mis-
siðnarferð til nýbyggðarinnar á vestrströnd Manitoba-vatns, sem liann
árinu áðr hafði einnig heimsðtt. Hann ætlaði í þetta skifti einnig
að heimsœkja byggðirnar austan við vatnið. en gat ölientugra
ástœðna vegna ekki komið því við. — I Ágúst gjörði séra Björn B.
Jónsson sér ferð til Watertown í Suðr-Dakota, þar sein dálítill hðpr
íslendinga á heima. Enn fremr í September til Minneapolis og Du-
luth. í hinum fyrr nefnda af bœjum þessum er mjög fátt af fðlki voru,
en þar á mðti ibýsna margt í Duluth, enda myndaðist þar eitt sinn ís-
lenzkr söfnuðr í sambandi við kirkjufélagið, en hann uppleystist
bráðum, vafalaust sökum prestsþjðnustuskorts.—í Oktðber heimsðtti