Sameiningin - 01.08.1898, Síða 6
—ÍO—
ályktaði, að biðja séra Hafstein Pétrsson, prest Tjaldliúðarsafnaðar
hér í bœnum, að veita sér prestsþjónustu um tíma þetta sama vor.
Skyldi eg það á fyrirspuminni, að nokkur hluti safnaðarins hefði
talið þetta rangt, þar sem nefndr prestr stendr fyrir utan kirkjufé-
lagið, og hafa sömu menn líklega búizt við, að eg teldi þetta einnig
rangt. Upp á fyrirspumina svaraði eg því, að þó að vafalaust hefði
verið réttara af söfnuðinum að leita fyrst til prestainnan kirkjufélags-
ins, þá gæti mér ekki komið til hugar í félagsins nafni að mötmæla
þessari ályktan safnaðarins. Því fyrst og fremst myndi slík mötmæli
að eins verða til þess að aulca flokkadrátt i söfnuðinum, og í annan
stað bæri eg alls engan kvíðboga fyrir því, að neitt illt myndi leiða af
komu séra Hafsteins vestr, og það því síðr sem kunnugt væri, að bæði
hann og Tjaldbúðarsöfnuðr væri nú. í anda hlynntari kirkjufélaginu
en nokkurn tíma áðr. Mér þykir réttara að geta um þetta, þó að það
sé í rauninni prívat-mál, fyrir þá sök, að eg hefi síðar frétt, að séra
Hafsteinn hafi orðið fyrir talsverðu mötkasti í Þingvallanýlendu
og að þess hafi af sumum verið getið til, að það mótkast hafi verið af
mínum eða kirkjufélagsins völdum.
Næst missiónar-starfsemi kirkjufélagsins er að geta samtalsfund-
anna út af trúar- og kirkjumálum, sem haldnir hafa verið á árinu í
liinum ýmsu söfnuðum samkvæmt bending fyrri þinga. Alls hafa 9
slíkir fundir haldnir verið eftir því, sem eg veit bezt. Hinn fyrsti
þeirra var haldinn í kirkju Argyle-safnaða 18. Oktöber, og höfðu menn
þrjú mál þar til meðferðar: kvöldmáltíðarsakramentið, inngöngu
kirkjufélagsins í Qenernl Council og skölamálið, og voru þar með leik-
mönnum safnaðanna þrír af prestum kirkjufélagsins viðstaddir. Næsta
dag á eftir að kvöldinu var samskonar fundr haldinn í kirkju Fyrsta
lúterska safnaðar í Winnipeg og sömu prestarnir þar við. En
umrœðuefnið á þeim fundi var: sakramentin, einkum skírnarsakra-
mentið. í St. Páls kirkju í Minneota var samtalsfundr í miðjum
Növember, sem fölk úr öllum söfnuðum þeim, er séra 'Björn B. Jöns-
son þjónar, tök þátt í, og var þar rœtt um helgidagahald. Á fundi í
Lincoln-söfnuði, sem heyrir til sama prestakalli, 11. Pebr. var umrœðu-
efnið: Hvað er það að vera kristinn maðr? Á hvorugum funda
þessara voru aðrir prestar en prestr þeirra safnaða. Þrír samtals-
fundir voru í haust hvern daginn eftir annan haldnir í prestakalli
séra Friðriks J. Bergmanns: í kirkju Víkrsafnaðar að Mountain 18.
Növ., og var þar rœtt um þýðing þess fyrir fólk að standa í kristnum
söfnuði, í Garðar-kirkju 19. Növ. og kirkju Þingvallasafnaðar á Ey-
ford 20. Nóv.. og var á báðum þeim fundum rœtt um sakramentin.
Fjórir prestar söttu þessa fundi alla þrjá. Og loks voru í vor tveir
samtalsfundir haldnir í prestakalli séra Jónasar A. Sigurðssonar: í
kirkju Pótrssafnaðar 25. Marz og Hallson-kirkju degi síðar. Á fyrra
fundinum var umrœðuefnið: lúterska kirkjan, sérkenni hennar og
hversvegna vér eigum að heyra henni til; og á hinum síðara: guðs
orð. Fyrra daginn voru fimm prestar viðstaddir og fjórir hinn síðara.
Þött bein hluttaka almennings í umrœðunum um hin eiginlegu trú-