Sameiningin - 01.08.1898, Blaðsíða 7
—71—
mál hafl liingað til verið nokkuð lítil, þá liefir þð fölki allsstaðar þótt
einkar vænt um fundi þessa,og væntanlega liafa þeir orðið til tals-
verðrar kristilegrar uppbyggingar.
Það mál, sem lang-mest bar á á kirkjuþingi voru hinu síðasta,
var skölamál kirkjufélagsins. En síðan lieflr undr lítið borið á því
máli. Agreiningr kom all-mikill fram í fyrra á þinginu út af sköla-
stœðinu, og vafalaust einkum fyrir þá sök heflr skólamálsnefndin ekki
séð sér fœrt, að eiga neitt við fjársöfnun skölasjððnum til handa á
árinu. Að þessu leyti stingr árinu alveg í stúf við næsta ár á
undan, því þá auðgaðist sjöðrinn með lang-mesta möti, en nú nálega
ekkert. Síðasta þing gaf nefndinni heimild til, að ákveða skölastœðið
um nýár í vetr, sem leið. En hún sá sér ekki heldr fœrt, að taka
neina fullnaðarályktan því viðvíkjandi. Að sjálfsögðu liggr það fyrir
þessu þingi, að ráða þessu atriði málsins t-il lykta, ef það með
nokkru möti sér sér fœrt. Og að minnsta kosti væri ótœkt, að Játa
málið lengr liggja í þessu dái. En að öðru leyti skýrir skölamáls-
nefndin þinginu nákvæmar frá ástœðxrm og leggr fyrir það til-
lögur sínar.
Hin sex bandalög [Lutlier Leagues) fyrir unga fölkið í söfnuðum
kirkjufélagsins, sem voru til í fyrra, hafa verið í gangi á árinu, og nú
fyrir fám dögum hefir eitt nýtt bœtzt við, í Argyle-söfnuðum, presta-
kalli séra Jöns J. Clemens. Samkvæmt ályktan síðasta kirkjuþings
hefir séra Jönas A. Sigui'ðsson í nafni hinnar standandi bandalags-
nefndar kvatt erindsreka frá hinum ýmsu bandalögum til fundar í
sambandi við þetta þing, í því skyni, að koma sameining á milli fé-
laga þessara og hvetja þau til sameiginlegrar framsóknar í heilsu-
samlegum, kristiJegum anda. Þann fund á að halda hér í kirkjunni
næstkomanda þriðjudag, 28. þ. mán. Bandalagsmálið er í barndömi
hjá oss—eins og reyndar hvervetna í kirkju vorri—, og þarf vitrlega
með það að fara, ef sú hreifing á, eins og til er ætlazt, að leiðast út
kirkjulífinu til blessunar. Óskanda því, að hinn fyrirhugaði sam-
einingarfundr heppnist vel.
Málið um inngöngu kirkjufélagsins í General Gouneil hlýtr að koma
til umtals á þessu kirkjuþingi, án þess eg þö búist við, að það verði til
lykta leitt nú. Til þess ber og engin brýn nauðsyn, þar sem General
Council-menn hafa eltki sambandsþing fyrr en að hausti 1899. Ahugi
safnaða vorra á inngöngunni er mér vitanlega eklti heldr enn ein-
dreginn, þótt allir að líkindum telji inngönguna sjálfsagða seinna
meir. Hin standandi nefnd í inngöngumálinu legg’’ væntanlega á
sínum tíma sínar tillögur málinu viðvíbjandi fyrir þingið.
Meðan síðasta kirkjuþing stöð yfir vigði eg með aðstoð hinna
prestanna þrjár kirkjur í prestakalli séra Björns B. Jónssonar: St. Páls-
kirkju í Minneota, kirkju Vestrheimssafnaðar og kirkjuna í Marshall,
—allar sama daginn, sunnudaginn 27. Júní. Síðan hefir engin
kirkja verið vígð innan félags vors. En hinsvegar hafa tvær nýjar
kirkjur verið reistar síðan í fyrra: kirkjan í Pétrssöfnuði og kirkjan
á Hallson, báðar mjög sœmileg og vönduð guðsþjónustuhús, Ilin-