Sameiningin - 01.08.1898, Blaðsíða 9
—73—
meir lesin, einkum af hinni uppvaxandi kynslöð, en liingað til heflr
verið.
Bókasafn kirkjufélagsins er samkvæmt ráðstöfun skölamáls-
nefndarinnar enn í mínum vörzlum. Nokkrar hœkr hafa safninu
verið gefnar á þessu ári, einkum frá Islandi. Og er að nokkru leyti
fyrir þær gjafir kvittað í ,,Sameiningunni“, og verðr síðar að öllu
leyti. Með þakklæti er vert að minnast, þess, að hr. Sigurðr Kristjáns-
son í Keykjavík hefir lofað, að gefa safninu eitt eintak af hverri bök,
sem hann framvegis gefr tít. Og ætti þetta að vera mönnum hér hvöt
til þess að hlynna líka að safninu með bókagjöfum við og við.
Ánœgja er að geta þess, að altarisgöngur fara vaxandi í söfn-
uðunum. Auðvitað vantar þó mjög mikið á, að allir fermdir safn-
aðarlimir noti sér náðarmeðal kvöldmáltíðarinnar.
Kosning embœttismanna
fyrir næsta ár fór þá fram, þannig: forseti séra Jón Bjarnason,
varaforseti séra Friðrik J. Bergmann,—endrkosnir; skrifari sóra
Björn B. Jónsson, varaskrifari séra Jón J. Clemens; féhirðir
Jón A. Blöndal,—endrkosinn; varaféhirðir þorgils Halldórsson.
Samþykkt var, að stud. theol. Runólíi Marteinssyni skyldi
veitt fullkomin þingmannsréttindi, einnig séra Ilafsteini Pétrs-
syni, presti Tjaldbúðarsafnaðar í Winnipeg, sem og var við-
staddr, málfrelsi á þinginu.
Fundarreglur kirkjufólagsins upp lesnar.
í nefnd til að íhuga ársskýrslu forseta voru þar næst kosnir
séra Friðrik J. Bergmann, séra Björn B. Jónsson og Árni Sig-
valdason. þeirri nefnd var einnig falið, að veita kirkjuþings-
málum viðtöku og raða þeim niðr á dagskrá.
í fyrra hafði gleymzt að kjósa menn til að yfirskoða alla
reikninga kirkjufélagsins. Til að bœta úr því voru nú—að því,
er snertir hið liðna ár—til þess kosnir Magnús Pálsson og O. G.
Anderson.
Umsólcn um inntöku í lcirlcjufélagid'
frá séra Jónasi A. Sigurðssyni fyrir hönd Melanktonssafnaðar
var lögð fyrir þingið af forseta, þannig hljóðandi:
Akra, N.-Dak., 28. Apríl 1898.
Séi’a Jón Bjarnason, forseti hins ev. lút. k.fél. Isl. í Yestrheimi.
Háttvirti herra forseti!—Að lokinni guðsþjönustugjörð sunnudag-
inn 25. Júlí síðastliðinn, að Ely pösthúsi, N.-Dak., myndaðist ,,hinnev.
lút. Melanktonssöfnuðr" með 126 meðlimum. Var á fundi, höldnum
eftir guðsþjönustuna, lcosin safnaðarstjórn, samþykkt safnaðarlög og
sömuleiðis grundvallarlög hins ev. lút. kirkjufélags Islendinga í Vestr-
heimi, samkvæmt 13. grein þeirra grundvallarlaga.