Sameiningin - 01.08.1898, Page 12
Runólfr Runólfsson í fyrra fór þaðan burt til Sayreville í New
Jersey, þar sem hann síSan hefir þjónað dálitlum íslenzkum
söfnuði. Séra Runólfr heyrir nú til Ministerium of Pennsyl-
vania, elztu deild General Council-félagsins.
Missíónar-málinu var eftir nokkrar umrœður vísað til fimm
manna nefndar, og voru í þá nefnd kvadair: séra Björn B. Jóns-
son, Runólfr Marteinsson, Gísli Egilsson, Guðjón Ingimunds-
son og Bjarni Marteinsson.
5. fundr, sama dag, kl. 2.15—6 e. m.
Innganga Melanlctonssafnaffar í kirkjufélagið.
Nefndin í því máli iagði fram álit sitt, svo hljóðanda :
Herra forseti!
Nefndin, sem þér settuð til að 'yfirfara safnaðarlög ,,Melanktons-
safnaðar" í Ely, N.-Dak., og íliuga umsókn hans um inngöngu í kirkju-
félagið, leyfir sér að leggja fram álit sitt um þetta efni þannig :
Þrátt fyrir að safnaðariög Melanktonssafnaðar eru ekki í sam-
rœmi við safnaðarlög annarra safnaða í kirkjufélagi voru í einu atriði,
þá ráðum vér þó til,að heiðni safnaðarins sé veittoghann tekinn inn í
kirkjufélagið.
Það er vegna hinna sérstöku kringumstœðna safnaðarins.að vér nú
ráðum til þess, að hann sé tekinn inn í kirlcjufélagið með safnaðar-
lögunum eins og þau eru, því vér erum annars eindregið þeirrar skoð-
unar, að ekki sé aðrir teknir inn í söfnuðina en þeir, sem fermdir eru.
Eftir nokkrar umrœður var nefndarálitið samþykkt og
Melanktonssöfnuðr þannig tekinn inn í kirkjufélagiS.—Skýrt
kom það fram við umrœðurnar, að menn vildu, að fermingin
væri gjörð að skilyrði fyrir inntöku fullorðinna manna í söfnuð,
eins og ákveðið er í safnaðarlagafrumvarpi kirkjufélagsins, og
að söfnuðr sá, sem nú er um að rorða, lagaði lög sín eftir því
ákvæði. En af því að þetta atriði er látið óákveðið í 13. grein
grundvallarlaga kirkjufélagsins, sem hljóðar um inngöngu
safnaða í félagið, þá. varð það að samþylckt, að Melanktonssöfn-
uðr skyldi skilyrðislaust tekinn inn.
Innganga Jcirkjuféiagsins í General Gouncil.
])að mál var allra snöggvast tekiö fyrir. En með tilliti til
þess, að von var á kjörnum erindsreka frá General Council til
kirkjuþings þessa eftir næstu helgi, þótti réttast, að láta uin-
rœður um málið bíða þangað tii liann væri kominn, og var því