Sameiningin - 01.08.1898, Side 13
■77—
samþykkt, aS fresta máli þessu til óákveðins tíma seinna á
þinginu.
„Sameiningin“,
þriðja máliS á dagskrá, lá þá fyrir. En með því aS féhirðir
útgáfuncfndarinnar, hr. Jón A. Blöndal, skýrði frá, að reikn-
ingar blaðsins væri eklci alveg til, var ályktað, að fresta einnig
því máli þangað til reikningar gæti orðið lagðir fram.
Sunnudagsslcólamálið
var þá tekiö fyrir. En umrœður urðu ekki miklar og snerust
nálega eingöngu um það, að hið nýja blað, „Kennarinn", sem
stofnað var í fyrra til stuðnings sunnudagsskólum vorurn, heföi
reynzt injög þarft fyrircoeki, sem sjálfsagt væri aS hlynna að
framvegis. Bending kom þó fram um það, aS heppilegt myndi,
að sunnudagsskólakennarar hefði árlega fund í sambandi við
kirkjuþingið til þess að roeða um málefni sunnudagsslcólanna,
í líking við sambandsfund bandalaganna, sem nú ætti í fyrsta
sinn að halda meðan stœði á þessu kirkjuþingi.
Yiðvíkjandi „Kennaranum", útgáfu þess blaðs og ritstjórn
var þessi tillaga borin fram og samþykkt:
„Kirkjuþingið lýsir yfir ánregju sinni meS sunnudagsskóla-
biaðið „Kennarann11, sem út hefir komið þetta ár, og þakkar út-
gefandanum og séra Birni Jónssyni, sem haft hefir ritstjórn
þess á hendi, fyrir verk hans, ásamt þeim mönnum, sem með
honum hafa starfað. það kýs séra Björn B. Jónsson hérmeð
fyrir ritstjóra blaösins framvegis og loggr söfnuöum sínum á
hjarta, að vinna sem allra bezt að útbreiðslu blaðsins meðal
sunnudagsskólalýðsins og ungmenna yfir höfuð.“
Bandalagsmálið
var að því leyti tekið fyrir, að séra Jón J. Clomens, einn hinna
þriggja manna í nefndinni, sem síðasta kirkjuþing setti í því
máli, skýrði frá, að séra Jónas A. Sigurðsson — þriðji maðr
nefndarinnar var hr. Runólfv Marteinsson—hefði skömmu áðr
en hann lagði á stað í sína Islands-ferð í nafni nefndarinnar
boðað til sameiginlegs bandalagsfundar, er halda ætti hér í
Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg næstkomanda þriðjudag, í
því skyni, að reyna að koma á sambandi milli hinna ýmsu
bandalaga í söfnuðum kirkjufélagsins. IJann gat þess og, að