Sameiningin - 01.08.1898, Side 15
—79—
7, fundr, mánudag 27. Júní, kl. 9.15 f. m.—12.30 e. m.
Orundvallarlagabreyting.
Nefndin, sem sett hafði verið í því máli á 5. fundi, lagði
fram álit sitt svo hljóðanda:
Herra forseti!
Nefndin, sem þér settuð til að yfirskoða grundvallarlög kirkjufé-
lagsins, leyfir sér að ráða til eftirfylgjandi breytinga:
a) Að úr 1. lið 8. gr. falli burt ákvæðið um almennar umrœður
i þeim söfnuðum, sem kirkjuþingið er haldið í, og enn fremr ákvæðið
tun fyrirlestra á kirkjuþinginu.
b) Að úr 2. lið sömu gr. sé einnig fellt ákvæðið um upplestr
gjörðabökar, en að sá liðr endi með orðunum ,,á kirkjuþingi hverju“.
c) Að síðari liðr 9. gr. um fjarveru þingmanna frá þingfundum
sé allr felldr úr grundvallarlögunUm.
Innganga lárkjufélagsins í General Gouncil.
það mál var næst tekið fyrir og rœtt allt til fundarloka.
Málið var á þessum fundi rœtt á víð og dreif, enda var engin
tillaga enn komin fram frá hinni standandi nefnd, sem sett var
í málinu í fyrra á kirkjuþingi.
8. fundr, sama dag, kl. 2.15—6 e. m,
Búizt var við, að Alfred Ramsey, prestr í Minneapolis,
hinn kjörni erindsreki frá General Council, væri þegar kominn
til Winnipeg og myndi þá og þegar koma á þingið. Og meðan
eftir honum var beðið var ályktað, að fresta áframhaldi um-
rœðnanna um inngönguna í General Council, en í þess stað taka
fyrir málið
um hina kristilegu Uknarslcyldu
og hvernig vér fáum innt hana af hendi.
Hr. Runólfi Marteinssyni hafði verið falið að leiða það mál
inn á þing, og það gjörði hann með því að lesa upp ritgjörð þess
efnis, er hann hafði samið. Sú íútgjörð birtist hér síðar í
blaðinu.
Um það leyti, er hr. Runólfr var að ljúka máli sínu, kom
Ramsey prestr á þing, og er hann hafði lagt fram erindisbréf
sitt, var honum með samhljóða atkvæðum þingmanna gefið
orðið. Flutti hann þinginu bróðurlcveðju frá General Council
og skýrði jafnframt í rœðu all-langri frá stefnu og starfsemi
þess kirkjufélags.