Sameiningin - 01.08.1898, Side 16
—80—
Síðan váf affcr horfiS að malinu um líknarskylduna og það
rœtfc um hríð. Minnt var við þær umrœður á dr. Passavant,
sem andaðist fyrir fám árum, og hina afar víöfcœku og blessun-
arríku líknarstarfsemi hans; og var sú von látin í Ijósi, að þó
að enn yrði þess að líkindum nokkuð langt að bíða, að kirkju-
félag vort gæti kcmið upp nokkurri eiginlegri líknarstofnan, þá
létum vér þó líknarskylduna kristilegu oss aldrei úr minni líða.
9. fundr, sama dag, kl. 8—10 e. m.
Inngangan í General Council.
Eftirfylgjandi tillaga frá hinni standandi nefnd kirkju-
þingsins í fyrra í því máli var lesin upp og lögð fram:
Herra forseti! .
Standandi nefndin í General Council-málinu ræðr kirkjuþinginu
til, að fela prestum sínum á hendr, að gefa söfnuðum þeirra allar mögu-
legar upplýsingar í þessu máli, einkum að taka þetta mál til rœkilegr-
ar meðferðar á öllum þeim samtalsfundum, sem haldnir kunna að
verða á árinu, til þess, ef verða mætti, að vér yrðum við því búnir, að
gjöra fullnaðarsamþykkt í þessu máli á næsta kirkjuþingi. Vér
minnum á yfirlýsing kirkjuþingsins í fyrra, og álítum, að það að sjálf-
sögðu samkvæmt guðs vilja liggi fyrir í nálægri framtíð, að kirkjufé-
lagið gangi í General Council, og teljum hiklaust inngönguna, hve nær
sem af henni verðr, hið mesta heillaspor á framfaraleið kirkjufélags-
ins, og hvetjum því bæði presta vora og leikmenn til að greiða
fyrir því eins og hezt má verða fram að næsta þingi.
Erindsrekinn frá General Council, sem enn ílutti all-langt
mál um kirkjufélag sitt, lýsti yfir því, að alls enginn kostnaðr
Jegðist á íslen/ka kirkjufélagið við það að ganga í General
Council annar en sá, er það sjálft legði á sig af fúsum vilja.
Ýmsum spurningum, sem fyrir hann voru lagðar af þingmönn-
um viðvíkjandi kirkjulegri stefnu General Council-manna, svar-
aði hann og svo, að menn virtu3t ánœgðir. Og var honum veitt
þakklætisatkvæði þingsins fyrir upplýsingarnar. Hann þakk-
aði og fyrir bróðurlegar viðtökur og fiutti að ending kveðju frá
cnsku norðvestr-synódunni, hinni ungu og uppvaxandi félags-
deild General Councils, sem hann og söfnuðr hans í Minneapolis
tilheyrir.
Tillagan, sem fram hafði verið lögð, í General Council-mál-
inu, var samþykkt.