Sameiningin - 01.08.1898, Side 26
—90
bœnar að helga oss í sannleikanum, sannleik þess orðs, sem vér
trúum og játum aS flytji syndugum mönnum sáluhjálpina,
sannleik þess orSs, sem vér höldum á lofti í kirkjunni og viljum
útbreiða meSal almennings. En þaS, aS vér helgumst í sann-
leikanum, þaS þýSir, eins og þegar er á drepiS, auSmýkt, sann-
kristilega auSmýkt, svo mikla auSmýkt, að persóna sjálfra vor,
hinn náttúrlegi maðr, vor, þoki algjörlega fyrir persónu frelsar-
ans Jesú Krists. „Svo að allir sé eitt“,—segir Jesús í bœninni,
„eins og þú, faSir, ert í mér og eg í þér, svo aS þeir og sé eitt í
okkr“;------„eg í þeim og þú í mér, svo aS þeir só fullkomlega
sameinaðir.“ Yér þurfum allir aS biSja eins og beSiS er í haust-
sálminum einum í sálmabókinni:
„Tak allt það, drottinn minn, frá mér,
sem mér kann snúa burt frá þér,
svo okkr enginn skilji;
en gef mér aftr, guð minn, það,
er getr mér þér snúið að;
gef vilja þinn eg vilji.“
Allt þetta liggr í bœninni írelsarans fyrir oss öllum hans læri-
sveinum : „Helga þú þá í þínum sannleika."
Dagrinn í dag er stórmerkr dagr í sögu þjóSar vorrar, því
á Jónsmessu, 24. Júní, árið 1000 var kristni lögtekin á íslandi.
Ef kristindómrinn, eins og vér víst hiklaust allir játum, er
bezta gjöfin, sem mannkynið hefir fengið, þá hlýtr líka þessi
dagr aS teljast merkasti dagrinn í sögu þjóðar vorrar. það er
að vísu af sumum í nútíðinni talað lítt virðulega um þessa
kristnitöku íslendinga til forna ; ekki laust við, að skopazt só
aS því, aS kristnin var innleidd meS samþykkt á alþingi eins
og borgaralegt lagaboð. Og auðvitað var það í all-miklu ósam-
rœmi við trúarhugsjón þá, sem ræðr í nýja testainentinu. En
eins og það er víst, að kristnin jafnvel í sínum ófullkomnu þá-
tíðarumbúðum varS til ómetanlegrar blessunar á ættjörðu
vorri, eins víst er þaS, aS forfeSr vorir undir eins þá við kristni-
tökuna skildu merkilega vel þýðing þessara bœnarorða Jesú :
„Helga þú þá í þínum sannleika“,—alveg vafalaust miklu betr
en margir nútíðar-íslendingar með kristnu nafni. —• Aðr en
kristnin var lögleidd var allt í uppnámi á alþingi út af því, að
liin nýja trú var sýnilega að ryðja sér til rúms í landinu. því