Sameiningin - 01.08.1898, Qupperneq 29
—93—
veittu þau mér sérlega lilýjar viStökur. þau eru ein íslendinga
í þeim bœ.
Nokkru eftir kirkjuþing, þriðjudaginn 7. Júlí, fór eg í ann-
að sinn út í Grunnavatns- og Alftavatns-nýlendu, og hafði eg í
þetta skifti meiri viðdvöl í hinni fyrr nefndu en þegar eg kom
þangað út í vor. Byggðin þar er falleg, en sá stóri galli er á
rétt sem stendr, að Grunnavatn liggr á bökkum og hylr það,
sem áðr var blómlegt engi. Menn vona þó sífellt, að annað-
hvort verði vatnið rist fram eða það lækki í því af náttúrunnar
völdum.— Guðsþjónustur voru haldnar í skólahúsunum beggja
megin vatnsins, og var guðsþjónusta sú, er haldin var á vestr-
strönd vatnsins sérstaklega vei sótt. Á austrströnd vatnsins
hafa oft verið haldnar húslestrasamkomur, þannig, að menn
hafa komið saman til skiftis hver hjá öðrum, og er þetta mjög
fallegt og uppbyggilegt. í sambandi við þessa lestra voru börn-
in einnig uppfrœdd og þeim kennd sálmalög. þetta geta menn
auðvitað víða í prestlausum byggðum. Á vestrströnd vatnsins
voru þeir svo sérstaklega heppnir, að hafa alþýðuskólakennara,
ungan námsmann, mjög einlæglega kristinn, Árna Anderson frá
Winnipeg, sem bauð þeim, að stofna sunnudagsskóla hjá þeim.
Slík tœkifœri gefast ekki ætíð, og ætti byggðarmenn að vera
reiðubúnir að leggja mikið á sig til að nota þvllíka viðleitni. Á
eftir guðsþjónustu í þeirri byggð var eins og víðar samtalsfundr
viðvíkjandi safnaðarmyndan. þó raddir kœmi þar fram í þá
átt, að œskilegt væri, að kristilegr félagsskapr væri myndaðr,
voru þó fiestir á því, að ekki væri að svo stöddu ástœður til að
mynda söfnuð. En velvilja og þakklæti til kirkjufélagsins fyrir
að senda trúboða þangað létu menn í ljósi bæði í orði og með
myndarlegum fjárframlögum.—ÍÁlftavatns-nýlendunni hafði eg
guðsþjónustu á sunnudaginn, 17. Júlí. Veðr var hið yndislegasta,
sem hugsazt gat,enda var samkomuhúsið trcðfullt og þó ýmsir úti.
Guðsþjónustan var mjög ánœgjuleg. Vér sungum drottni vor-
um til dýrðar með f jöri og hita, þó sönglistarmennirnir hefði, ef
til vill, fundið eitthvað að söngnum, frá íþróttarlegu sjónarmiði.
Sunnudagsskóli var á eftir guðsjjjónustunni.og hafði hann verið
stofnaðr eftir að eg kom þangað í fyrra skifti. Á honum voru
34 börn þann dag, og var þeim skift í þrjá flokka. Kennararnir
eru : Jón Sigurðsson, Páll Keykdal og Snjólfr Sigurðsson. Börn-