Sameiningin - 01.08.1898, Side 31
—95—
iuga. Seinasta kvöldiö, sem eg var í byggðinni, hélt kvenfé-
lagið gleðisamkomu. "Var þar hópr manna saman kominn, og
fékk eg þar tœkifœri til að kveðja marga af vinum þeim, er eg
nafði eignazt í þessari ferð. Mér var falið á hendr, að bera hlýja
vinar- og þakklætiskveðju til kirkjufélags vors fyrir þann vel-
vildarhug, sem það sýndi með því að senda mann til að prédika
þar guðs orð. Á leið minni tilbaka dvaldi eg hjá íslendingum
í Calgary og hafði þar tvær guðsþjónustur, hina seinni í Pres-
byteríana-kirkjunni á sunnudaginn 7. Ágúst. þar eru 9 fjöl-
skylduhús íslenzk. Yiðtökurnar þar voru einnig hinar allra-
beztu. Yfir höfuð líðr löndum vorum í þessari vestlægu byggð
vel, og þeir una sérlega vel hag sínum. — Að ending þakka eg
svo öllum þeim fjölda manna,er hafa veitt mér liðsinni á þessum
ferðum mínum og bið guð að launa það, sein eg get ekki.
--- o .^cr.n ,-Tn ^9-----------
Gjafir til bókasafns kirkjufólagsins.
í viðbót við það, sein kvittað er fyrir í „Sam.“ XII, 8, hefi
eg í vetr og vor veitt bókagjöfum nokkrum viðtöku til bóka-
safns kirkjufélagsins, sem enn er samkvæmt ráðstöfun skóla-
málsnefndarinnar í mínum vörzlum. En bœkrnar eru þessar:
Frá hr. Sigurði Kristjánssyni í Reykjavík: Biblíuljóð
séra Yaldemars Briem, síðari partr; Smásögur Pétrs biskups
Pétrssonar VIII, íslendingasögur 16—19 í útgáfu gefánda (þ. e.:
Reykdœla saga, þorskfirðinga saga, Finnboga saga, Víga-Glúms
saga) ; Vísnakver Páls Vídalíns (Kh, 1897);—allar þessar bœkr
í kápu.
Frá séra Þórhalli Bjarnarsyni, lektor, í Reykjavík : Hið
íslenzka garðyrkjufélag 1895, 1896, 1897 og 1898 og „Kirkju-
blaðið“ frá upphafi til loka 6. árgangs í tveim exemplörum ásaint
Kristilegum smáritum nr. 1—20, er með því hafa fylgt. Að
nokkru leyti er áðr í „Sam.“ kvittað fyrir Kirkjublaðsgjöfina.
Enn fremr Minningarrit 50 ára afmælis prestaskólans í Reykja-
vík, 2 exemplör.
Frá séra Jóni Helgasyni, prestaskólakennara: „Verði
liós!“ frá upphafi til þcssa.
Fráhr. Kristjáni Mattlneson, p.t. Winnipeg: Morton’s Hand
Books of the Farm, London, Engl., 9 bindi (þ. e.: Chemistry