Sameiningin - 01.11.1906, Síða 29
285
umburðarlynd hvert við anna'ð. Kristinn maður ókurteis
líkist milíónera, sem enga peninga hefur á sér; því gott viðmót
og góð umgengni er eins og nokkurskonar smápeningar krist-
ins kærleika. Ef hjarta drengs á kærleika Krists, þá verða
ioreldrar hans varir við það, og bræður hans og systur hans
og hesturinn hans og hundurinn hans og kötturinn hans—liver
liíandi skepna, sem kemur nálægt honum.
í safnaðar-skóla einum var drengja-hópur yfirheyrður úr
biblíunni.
„Hvað getið þiö sagt mér um Móses?“—spurði umsjónar-
maðurinn.
„Hann var göfugmenni"—kallaði upp fölleitur drengur,
greindarlegur á svipinn, sem leit út fyrir að vera eitthvað um
xi ára.
„Göfugjnenni 1“—endurtók umsjónarmaðurinn, og var eins
og honum brygði ögn við. „Hváð áttu við?“
Drengur svarar óðar: „Herraminn! Þegar dætur Jetró’s
íóru út að brunninum, til þess að sækja vatn, þá ráku hirðarnir
þær frá brunninum. En Móses hjálpaði dætrum Jetró’s og
sagði við hirðana: ,Gerið þið svo vel, herrar imínir! að lofa
konunum áð komast að fyrst‘.“
Þ annig geta börn lært í biblíunni ýmislegt mn fallega fram-
komu í smá-atriðum ekki síður en um það, hvernig þau eigi að
hegða sér í því, sem meira er í varið.
BARA EINS OG EG VIL.
(Xausl. þýtt.J
Stúlka sagði fyrir skömmu svo eg heyrði: „Eg ætla mér
ekki framar að talca sönglexíur hjá Miss H. Hún er mikils til
of beimtufrek. Hún heimtar einlægt, að eg haldi höndanum
bara si-sona eins og hún vill. Og hún lætur mig hafa upp aftur
og aftur sanxa kaflann og sama stykkið, þangað til eg hef það
rétt eins og hún segir. Þetta er alveg óþolandi. Eg ætla mér
áð taka lexíur hjá Miss Brown. Það er betra að eiga við hana.
Hún lofar hverjum að gera eins og honum líkar, og er ekki aö
ónotast við hann, þó hann hafi ekki lært lexíuna sína. “
Haldið þið, að þessi stúlka verði nokkurn tima m’ikil söng-
kona—eða læri yfir höfuð nokkuð í sönglist?
Kunningjakona mtn ein sagði við ntig hérna um daginn:
„Eg vil ekki læra hjá Miss Hart. Hún er einlægt að setja út á
íyrir mér. Eg stenst það ekki. Eg er alteins skynsöm og
hún."