Lífið - 01.01.1936, Síða 13
LÍFIÐ
Bernskan og lífið.
Dr. Adler hefir, ásamt dr. Freud, í Vínarborg,
uppgötvað það, er nefnist pschycoanalysis, þ. e.
sálgreining. Hann er frægur læknir. Ritgerðir hans
sameina og samræma vísindi og almenna heil-
brigða skynsemi. 1 mannlífinu hefir hann komið
auga á þrjú meginatriði, er hver maður verður að
fást við: starf, félagslíf, ást. Ógæfa lífsins er af
því, að mann skortir hugrekki til að fást við eitt
eða öll þessara viðfangsefna. Kjarklaus maður
hörfar undan veruleika lífsins. Hann getur ekki
orðið raunverulega nytsamur maður.
Dr. Adler hefir sýnt með rökum fram á þá afar
mikilvægu staðreynd, að bamið er ekki yfir fimm
ára að aldri, þegar lífsviðhorf þess er ákveðið.
Undantekningar geta átt sér stað. Kjarkleysinginn
getur orðið hugrakkur mannfélagsmeðlimur, en þó
því að eins að honum skiljist upptök vangiftu sinn-
ar, áður of seint er oi’ðið. Þessar undantekningar
eru fáar. Þrír flokkar barna eru einkanlega í
hættu: Þau, er eitthvað kann að vanta í frá fæð-
ingu, þótt fulla greind hafi, eða séu einstöku sinn-
um stórgáfuð, þau hafa sterka hneigð til að lifa
sig inn í sjálf sig, nema þau eigi þeirri gæfu að