Lífið - 01.01.1936, Blaðsíða 24
20
LÍFIÐ
uppeldi barnanna. Því enda þótt arfgengi væri
stundum augljós eða líkleg orsök, þá sýndu ýms
atvik, smá og stór, þegar ferill barnanna var rak-
inn frá því er þau fyrst mundu eftir tilveru sinni,
að skort hafði skilning og árvekni og að nógsam-
legrar varúðar hafði ekki verið gætt til þess að unt
hefði verið að uppræta illgresið úr hugarfarinu, en
hlynna svo að blómum þess góða, að þau ein hefðu
borið ávöxt.
Annar amerískur dómari, Brown, er hliðstæður
í áliti sínu við Lindsey. Hann rannsakaði æfiferil
margra afbrotamanna, og rakti mæðumein þeirra
til uppeldisins, til umhverfisins á bernsku- og
æskuárum. Einu sinni féll það í hans hlutskifti að
verða að dæma mann, er hann hafði haft kynni af
sem dreng og vissi að alist hafði upp við óholl og
spillandi áhrif. Varð honum þá að orði: „Ef eg
hefði verið í þínum sporum frá byrjun og þú hefðir
'verið í mínum sporum frá upphafi, væri eg nú sá
seki en þú dómarinn“.
Frakkneskur sálarfræðingur, Courné, tók sér
fyrir hendur að rannsaka heimilisástand í stórum
stíl og komst að þeirri raunsæu niðurstöðu, að um-
hverfi margra heimila var þannig, að hið hug-
fræðilega og siðfræðilega andrúmsloft þeirra var
eitrandi. Við náin kynni af börnum sumra þeirra
uppgötvaði hann leynda siðferðisgalla; hugarfarið
var að sýkjast eða orðið sjúkt. Með sálgreiningar-
aðferð Freuds hepnaðist honum að koma nokkrum
þeirra til liðs, áður en of seint var. Gekk honum
treglega að koma aðstandöndum barnanna til að