Lífið - 01.01.1936, Blaðsíða 75
lífið
71
heldur væg og hv.ergi nærri eins mannskæð og tyf-
us-sóttin.
8. Iðrakvef (kveisa, niðurgangur, búkhlaup).
1924 voru skráðir 987, en 1933 eru þeir 3200
sjúklingarnir og hefir sjúkratalan farið smá-hækk-
andi hin árin, en þetta ár er hæst, og er þá dánar-
talan 8. Um orsakir veikinnar verður ekki sagt með
vfssu, en svo virðist sem matarbreytingar valdi
töluverðu um veikina, en stundum er veikin ber-
sýnilega faraldur; ef hún gengur samtímis blóð-
sótt, er ekki unt að greina á milli nema með gerla-
rannsóknum. — Stundum lýsir veikin sér þannig:
sjúklingurinn verður snögglega veikur með kulda-
skjálfta, höfuðverk og beinverkjum eins og í verstu
farsóttum, með hita upp í 40° og þar yfir, svo eftir
fáa klukkutíma niðurgangur eða niðurgangur og
uppsala, hjá nokkrum er blóð í saurnum, stundum
mikið; eftir fáa daga er allt um garð gengið. Sjúkl-
ingarnir eru flestir börn upp í 15 ára aldur, en ann-
ars getur það tekið menn á öllum aldri. Ein kona,
um nírætt, er talin dáin úr veikinni. Erlendis, t. d. í
Danmörku, er hún tíðust í börnum um sumartím-
nnn, með hámark í júlí—ágúst. — Hér getur hún
gengið sem faraldur 1 öllum mánuðum.
Influensa (Flensa). Influensan er áreiðanlega
fiamall sjúkdómur, sem oft hefir geisað yfir jörð-
ina. Árið 1387 gekk influensa um alla Norðurálf-
una og í annálum er þess getið að 1388 hafi hér
£engið kynjasótt um landið og dóu margir, senni-