Lífið - 01.01.1936, Page 42
38
LIFIÐ
Á sama hátt á ríkið að styðja iðnaðinn. Árang-
urinn verður síst lakari þar. Miklar líkur benda til
þess, að nokkrir tugir þúsunda kr. á ári til efling-
ar iðnaðinum mundu gera meira þjóðfélagslegt
gagn en nokkur hundruð þúsund til landbúnaðar-
ins. Slíkur ríkisstyrkur er iðnaðinum nauðsynleg-
ur, meðan hann er að komast á legg. Síðar meir
mundi hann verða fremur veitandi en þiggjandi.
Efling iðnaðarins er eitthvert merkilegasta þjóð-
málið nú.
II.
Efling iðnaðar og iðnaðarvernd.
Hér verður nú minst á innri mál iðnaðarins,
þroskaskilyrði hans og framkvæmdaskilyrði. Þetta
verða aðeins lauslegar hugleiðingar. Annað getur
það ekki orðið í svona stuttu máli. Þetta efni alt
þyrfti að taka fyrir í sérstökum köflum, og gera
hverjum einum rækileg skil. Er vonandi að fleiri
menn verði til að leggja þar hönd að verki, þegar
frá líður.
Það er verkefni iðnaðarmannsins að taka ýms
efni, sem náttúran leggur til, og breyta ástandi
þeirra eða lögun, eða setja þau saman svo, að þau
fullnægi kröfum mannsins. í fám orðum sagt: að
gera efnin nothæf til fullnægingar ýmsum menn-
ingarþörfum.
Við þetta hefir mannkynið verið að dútla í
hundrað þúsund ár. Á þessu mikla starfi er menn-