Lífið - 01.01.1936, Side 51
lífið
47
ara. Hvorug leiðin er þó fær, nema með aðstoð
ríkisins.
Enn ,er margt ótalið, sem minnast mætti á í þessu
sambandi, en verður að bíða annars tækifæris.
Pétur G. Guðmundsson.
Smásaga um Lincoln.
Ritari Lincolns Bandaríkjaforseta tjáði honum
einu sinni, að einhver, sem hann tiltók, hefði móðg-
að sig stórkostlega, og vildi ekki taka því þegj-
andi, heldur rita honum harðort bréf.
„Og rétt er nú það“, mælti Lincoln, „skrifið þér
strax manninum meðan hitinn er í yður. Leysið
þér bara frá skjóðunni“.
Ritarinn, sem bjóst ekki við svona undirtektum
af forsetanum, lét ekki segja sér þetta tvisvar.
Og stundu síðar lætur hann Lincoln heyra skamma
bréf mikið.
„Ágætt!“, segir Lincoln, brosandi.
„Þér haldið að það megi senda það svona?“
„Senda það, nei! — það hefir mér aldrei til
hugar komið. Við stingum bréfgreyinu í ofninn.
Það hefir komið yður að fullum notum. Þér þurft-
uð að svala reiði yðar. Og nú hlýtur yður að vera
uiiklu léttara á eftir. Það getur verið holt að skrifa.
svona bréf. En það má ekki senda þau frá sér“.