Lífið - 01.01.1936, Page 59
LÍFIÐ
55
heimsins. Þar togast á áhrif japansks fasisma og-
rússnesks kommúnisma. Engum, sem til þekkja,
dylst, að hin síðargreinda stjórnmálastefna ryður
sér meira til rúms í Asíu.
Bæði Japan og Rússland hafa yfir mikilli vís-
inda-þróun að ráða. En þar sem Japan er á heljar-
þröminni fjárhagslega, með atvinnuleysingja svo
skiftir mörgum hundruðum þúsunda, eykst þjóðar-
auður Rússlands geysilega með ári hverju. Þar er
ekki við atvinnuleysi að stríða, heldur frekar skort
á vinnuafli. Þetta er atriði, sem mun ráða miklu í
úrslitabaráttu þessara stórvelda um áhrifin og yf-
irráðin í Asíu. (Þýtt).
íslensk funga.
Eg ann þínum mætti í orði þungu,
eg ann þínum leik í hálfum svörum,
grætandi mál á grátins tungu,
gleðimál í ljúfum kjörum.
Eg elska þig málið undurfríða,
eg undrandi krýp að lindum þínum,
eg hlýði á óminn þinn bitra, blíða,
brimhljóð af sálarröddum mínum.
E. B.