Lífið - 01.01.1936, Page 62
58
LÍFIÐ
um alheimsins. Heimspekin, sem var upprunnin úr
hinu hlutræna, þróaði betur og betur hið hugræna.
Hins algilda og fullkomna var ekki leitað í hinu
ytra heldur í því innra — í mannsheilanum.
Hið borgaralega skipulag hefir náð í framleiðslu
og verslunarviðskiftum hámarki sinna starfsmögu-
leika. Og eins og þrælahaldið til forna endaði,
eins hlýtur hið núverandi borgaralega skipulag að
enda. Þrælahald þýðir rányrkju og gerir ráð fyrir
ótakmörkuðu landrými, ásamt nýjum og nýjum
fylkingum þræla til að rækta það. Tækni fornald- f
arinnar fullnægði þó ekki kröfunum, er tímar liðu,
því þrælum varð ekki trúað fyrir nema einföldum
og óvandasömum störfum. Landsetinn (leigulið-
inn) og svo óðalsbóndinn gerðu kröfu til margfalt
meiri framleiðslu á sviði landbúnaðarins, en þræl-
ar gátu leyst af hendi.
Hið núverandi skipulag í framleiðslu, verslun og
viðskiftum er búið að lifa sitt fegursta. Frekari
þróun er óhugsanleg. Hrun þess er yfirvofandi.
Framleiðslutækni vélanna er svo geysimikil, að
til þess að fullnægja þörfum þjóðanna, þyrftu allir
hinir fullvinnandi menn að vinna mjög fáar (2
—3 stundir til dæmis) á dag að eins. Það stað-
hæfir Popper-Rynkeus meðal annara í bók sinni
„Náhrpflic.ht“. Og ýmsir iðnfræðingar hafa þegar
staðfest þetta með nákvæmum og hárréttum út-
reikningum. Mótstæður núverandi skipulags eru
augljósar. En mannkynið, sem, vegna aukinnar
þekkingar, hefir náð svo miklu valdi yfir ýmsum
möguleikum náttúrunnar, að framfarirnar eru