Lífið - 01.01.1936, Qupperneq 69
lífið
Um heilsufarið í landinu.
I. FARSÓTTIR.
Eg býst við að flestir viti, að hér er til sérstök
stofnun, sem heitir Hagstofa, og hún gefur út ár-
lega hinar svonefndu hagskýrslur, •— þær eru um
flest það, sem beinlínis lítur að efnalegri afkomu
þjóðarinnar, og ýmsum þjóðarhögum, fólksfjölda,
kosningum og ýmsu þess háttar. En eitt af því, sem
vitanlega hefir allmikla þýðingu fyrir afkomu
þjóðarinnar, er heilsufar og heilbrigðiástand
hennar, sem hægt er að sýna með tölum og töflum,
líkt og þeim, sem hagskýrslurnar birta, en þær
skýrslur eru ekki samdar á hagstofunni, heldur á
skrifstofu landlæknis, sem líka gefur út árlega
skýrslur um þessi mál, og heita þær skýrslur heil-
brigðiskýrslur.
Það eru til heilbrigðiskýrslur frá því fyrir alda-
^nót, og eru þær birtar í stjórnartíðindunum, en
sérprentaðar í bókarformi eru þær fyrst frá 1911.
Voru þær þá samdar með nýtísku sniði eins og
tíðkast í öðrum menningarlöndum, og ná þannig
senn yfir tuttugu og fimm ára tímabil, 2—3 eigu-
^eg bindi, full af fróðleik.
5