Sameiningin - 01.01.1930, Qupperneq 10
8
Hvert stefnir?
Þegar ma'Sur i foyrjun árs spýr hvert stefni fyrir kirkju-
félagi voru og öðrurrt félagsskap, þá verður það rýrnun íslenzku
nýlendanna, sem mestri athygli veldur. Gömlu íslenzku bygðar-
lögin mörg fara minkandi ár frá ári, unz þau hverfa með öllu.
Sumstaðar er hraðinn lítill, en víðast mikill. Innan vors kirkju-
félags hafa 5—6 söfnuðir og 3—4 kirkjur þegar lagst niður, fyrir
eyðing bygðanna á þeim stöðvum. Nýbygðir eru naumast telj-
andi á síðari árum, því fólk, sem flutt hefir úr gömlu bygðunum.
hefir tvístrast í allar áttir, þó smáhópa sé aS sönnu að finna á
nokkrum nýjum svæðum, t. d. í California.
Innflutta íslenzka kynslóðin týnir nú óðum tölunni, og engir
flytja inn í stað þeirra, sem deyja. Samkvæmt skýrslu stjórn-
arinnar voru árið 1921 á lífi í Canada 7,135 innfluttir íslendingar,
en börn þeirra og afkomendur voru 8,741. Tíu ár eru liðin siðan
þeirri skýrslu var safnað. Manntalið i ár mun sýna, hve margir
nú eru eftir. Miklu færri verða þeir, en við síðustu manntals-
skýrslu ; og með því það fólk, sem innflutt er í landið, er nú svo að
segja alt roskið fólk og gamalt, verður hraði strau-msins æ meiri
með hverju ári, sá er ber hina eldri kynslóð inn í eilífðina. Innan
fárra ára verða sama sem engir innfluttir íslendingar, fþ. e. þeir,
er á íslandi eru'fæddir) eftir í Ameriku, nerna svo, aö íslendingar
taki á ný að flytja frá íslandi til Ameríku, sem er næsta ólíklegt.
Fyrir innfæddu kynslóðinni, þeim, sem fæddir era hér í landi
af íslenzkum foreldrum, eða íslenzka afa og ömmur hafa átt, fer
líkt eins og öðru fólki. Það býr ekki ávalt á sama stað, heldur
tvístrast út um álfuna. Það giftist öðru fólki hérlendu og sam-
einast því. Við það ræður enginn mannlegur kraftur, og við
það verða menn að sætta sig, hvort sem mönnum fellur betur eða
ver.
Abærilegast er þetta í borgum og bæjum. Menn geta borið
saman það, sem var og það sem nú er, í Minneota, Marshall, Graf-
ton, Pembina, Brandori og Winnipeg.
í Winnipeg voru 1920, samkvæmt manntalsskýrslu rikis-
stjórnarinnar alls 2,273 Islendingar, innfluttir og innfæddir, og
þó enskir væri í móðurætt. All-mikið hefir þeim fækkað á tíu
árum. Gamla fólkið, það er frá íslandi fluttist fyrir 40—50 ár-
um, er að hverfa, og sætin eru auð. Þó allmargt fólk hafi flutt
úr íslenzkum sveitum inn í borgina, þá vegur það ekki upp á
móti þeim fjölda, sem flutt hefir burt,—vestur að hafi og suður