Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1930, Page 10

Sameiningin - 01.02.1930, Page 10
40 Annað atriði, sem ráða mátti af synjuninni, var það, að ríki hans er fólgið í einkennum andans, en ekki í ytri lögum eða réttar- fari. Ef þrætan hefði verið útkljáð af bræðrunum sjálfum, í kær- leilca, og með sanngirni af beggja hálfu, það hefði verið mikils virði; að fá það útkljáð með gjörðardómi og valdboði, það var frá andlegu sjónarmiði einskisvert. Hjartað gott og heilbrigt, og fjárskiftingin j)ar af leiðandi rétt og sanngjörn—það hefði veriö ríki Krist's. En að skifta eignum þessurn eftir annars manns vald- boði—það lcorn ríki Krists ekkert við. Setjum svo að báðir hefði verið í sökinni: annar ágangs- samur en hinn ágjarn, ])á hefði j)að verið mikill ávinningur að geta gjört ágangsmanninn höfðinglyndan og hinn ágjarna göfugan. En að taka erfðahlut með valdi frá eigigjörnum bróður og gefa hann öðrum bróður, jafn eigingjörnum, hvaða gróði var það, í andleg- um skilningi? Eða setjumi svo að sá, sem hélt arfinum hafi verið í sökinni, en málstaður umbiðjandans hafi verið hinn bezti—hann sjálfur hógvær maður og auðmjúkur og kæran réttmæt. Þá var ])að að sjálfsögðu hlutverk einhvers dómara að taka féð frá ranglætis- manninum og fá það þjóni Krists. En sú athöfn var ekki hlut- verk Jesú lvrists og enginn sérstakur ávinningur málefni hans. Hann launar ekki þjónum sínutn með erfðafé, jarðeignum, húsum eða gulli. “Ekki er guðsríki rnatur og drykkur, heldur réttlæti og friður og fögnuður í heilögum anda.” Kristur sigrar í hóg- værðinni sem umíber óréttinn, miklu fremur en í lagavaldinu, sem færir hann til rétts vegar. Færum nú þetta heim til þess málsins, sem nú er efst á dag- skrá. Híð mikla úrlausnarefni, sem Norðurálfuþjóðirnar þurfa að ráða fram úr, er eða verður þetta: Hafa þeir, sem nú eiga landið, fult ráð á þeirri eign sinni, svo að þeir geti farið með hana eins ög þeim sýnst, eða má erfiðismaðurinn gjöra kröfu til stærra hluta í ágóðanum? Hefir auðurinn gefið iöjunni sanngjarnan hluta hingað til, eða ekki ? Verkalýðurinn er einmitt á þessari tíð að skírskota máli sínu til kirkjunnar, til biblíunnar, til Drottins. “Meistari, seg þú bróður mínum að skifta með mér arfi okkar.” Nú er sjálf afgreiðsla málsins ekki kristindóminum viökom- andi. Að landeigendur mættu verða mildari, vinnuveitendur mann- úðlegri, leiguliðar ráðvandari, verkamenn óeigingjarnari, það væri dýrlegt, vissulega, og sigur milcill fyrir málefni Krists, og hvers- konar erfða-ráðstöfun, þar af fljótandi, væri koma guðsríkis í sannleika. En hvort jarðvegur og auðæfi einhvers lands eru á- fram í valdi auðkýfingsins, eða íátæklingurinn fær aðgang að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.