Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1930, Page 11

Sameiningin - 01.02.1930, Page 11
41 þeim—ef ríkir og fátækir eru svo jafn eigingjarnir eftir sem áÖur—hvort eigingjarn auÖmaÖur fær haldiÖ eigninni eÖa eigin- gjarn fátæklingur náÖ henni undir sig, þaÖ kemur, frá trúarlegu sjónarmiði, alveg i sama stað niður. Hvor bræðranna skal eiga arfinn, kúgarin, eða sá ágjarni? Annarhvor, eða hvorugur— hverju skiftir það? Varðar það nokkru eftir fimtíu ár? En eftir hundrað þúsund ár mun það miklu rnáli skifta, hvort þeir jöfnuðu þær sakir með mildi og göfuglyndi, báðir tveir, eða ekki. Þá er annars að gæta. Hánn vildi ekki vera vilhallur öðrum bróðurnum af því að hannj var vinur beggja. Hann gjörðist ekki forvigismaður neins sérstaks mannflokks af því að hann kom til að liðsinna öllu mannkyninu. Við megum telja það nokkurn veginn víst, að umbiðjandinn hafi orðið fyrir ranglæti, eða að honum hafi að minsta kosti fund- ist það sjálfum. Og Kristur hafði oft boðað mönnurn nauðsyn þess hugarfars, er myndi hafa komið bróður mannsins til að breyta rétt við hann. En nú neitar Jesús honum um liðveizlu gegn þess- um sama bróður, einmtt af því að hann var bróðir hans. Og í þessum anda var öll hans framkoma. Farísear vildu gjöra hann að flokksmanni þegar þeir spurðu hvort það væri leyfilegt að gjalda keisaranum skatt eða ekki. En hann vildi hvorugum veita lið sem Messías, hvorki stjórninni gegn skatt- greiðendum, eða þeirn gegn stjórninni. Mikið heyrum við talað um mannréttindi; það er dýrlegt orð og satt. En eins og það er oftast. notað, táknar það ekki annað en réttindi eins mannflokks, einnar stéttar. Og aðgæsluvert er það, að í þessum ágreiningi út af mannfélagsmálunum vitna báðir aðiljar til Krsts, til Biblíunnar, sem. málsvara sinna réttinda, alveg eins og þessi maður skaut máli sínu til meistarans. Annar flokk- urinn skirskotar til ritningarinnar eins og hún sé sá mikli dómari, senr bjóði fátæklingunum hógværð og undirsátunum auðmjúka hlýðni. Og hinn flokkurinn vitnar sigri hrósandi til sömu bókar- innar, eins og hún sé öll á þeirra bandi, og ágæti hennar sé fólgið í þessu einu, að hún býður auðmanninum að miðla öðrum af arfi sínum, og valdsmanninum að krefjast ekki meira en réttlátt er. Hvort heldur sem gjört er, þá er kristindóminum sýnd ó- virðing og ritningin rangt notuð. Hvorugt er þrællundaður verj - andi auðs eða' upphefðar,—þó skammarlega oft haf þeim verið skipað í þann hópinn á liðnum öldum,—og þau eru ekki heldur hlýðnir talsmenn eirðarleysis og uppreistar. Ritningin veitir ekki fátæklingnum einhliða fylgi gegn hinum ríka, né heldur auðmanninum gegn hinum fátæka; því að bræðra-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.