Fréttablaðið - 05.03.2011, Qupperneq 6
5. mars 2011 LAUGARDAGUR6
LÖGGÆSLA „Varnaðarorð lögreglu
eru þess eðlis að það verður hrein-
lega ekki undan því vikist að
grípa til sértækra aðgerða,“ segir
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra, spurður um aukafjár-
veitingu til löggæslustarfa.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
þá tillögu innanríkisráðherra að
veita fjármunum til tólf mánaða
átaks lögreglunnar til að vinna
gegn skipulagðri brotastarfsemi á
Íslandi. Átakið á að hefjast þegar í
stað og verður 47 milljónum króna
veitt til þess. Reynslan af átakinu
verður metin fyrir lok ársins og
ákveðið þá hvort halda skuli því
áfram.
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
gera tvennt til að styrkja löggæsl-
una í landinu, að veita viðbótarfjár-
magni til lögreglunnar í baráttu
hennar við glæpahópa og breyta
löggjöfinni til að rýmka heim-
ildir lögreglu í glímu hennar við
ofbeldis menn,“ segir innanríkis-
ráðherra.
Lögreglan varar við því að alvar-
leg skipulögð glæpastarfsemi sé að
færast í vöxt hérlendis og að alþjóð-
legir glæpahringir séu að skjóta
hér rótum. - jss
Innanríkisráðherra segir ekki undan því vikist að grípa til sértækra aðgerða:
Lögregla fær nær 50 milljónir
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
11
05
71
Styrkir úr Menningar- og
framfarasjóði Ludvigs Storr
Stjórn Menningar- og framfarasjóðs Ludvigs Storr hefur
ákveðið að veita styrki samtals allt að 15 milljónum króna
í tilefni af 30 ára afmæli sjóðsins og 100 ára afmæli
Háskóla Íslands.
Tilgangur sjóðsins er samkvæmt skipulagsskrá að stuðla
að framförum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnaðar
og skipasmíða með því að styrkja vísindamenn á sviði
jarðefnafræða, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga
og iðnaðarmenn til framhaldsnáms, svo og að veita styrki
til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum
greinum.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2011.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er hægt að
nálgast á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands,
www.sjodir.hi.is, og á vefslóðinni www.ludvigstorr.is.
Umsóknir skulu sendar í ábyrgðarpósti til Menningar- og
framfarasjóðs Ludvigs Storr, Laugavegi 15, 101 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður P. Gíslason
í síma 861 3173.
Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir
N
Skráning og fyrirspurnir í símum 53401100, 8220043 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is
N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s
Vellíðan án lyfja
með verkfærum sálfræðinnar
FRÁ BLAÐAMANNAFUNDI INNANRÍKISRÁÐHERRA Í FYRRADAG Löggæsla í landinu
verður styrkt með tvennu móti, segir Ögmundur Jónasson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Auglýsingasími
DÓMSMÁL Tveir menn voru á
fimmtudag dæmdir í fangelsi fyrir
„frelsissviptingu, stórfellda líkams-
árás, ólögmæta nauðung og tilraun
til fjárkúgunar“ auk fíkniefnabrota.
Mennirnir, Eyþór Helgi Guð-
mundsson og Gestur Hrafnkell
Kristmundsson, voru dæmdir í
tveggja og hálfs árs og tuttugu mán-
aða fangelsi í Héraðsdómi Norður-
lands eystra. Brot mannanna eru
sögð alvarleg, hrottafengin og niður-
lægjandi.
Mennirnir héldu ungum manni
föngnum í íbúð á Akureyri í ágúst
2009. Þeir beittu hann miklu ofbeldi,
köstuðu meðal annars logandi papp-
ír í hann. Þá var hann stunginn
með blóðugri sprautunál með þeim
afleiðingum að hann smitaðist af
lifrarbólgu C.
Ástæða árásarinnar var fíkni-
efnaskuld fórnarlambsins, en upp-
hæð hennar var mikið á reiki.
Fórnarlambið taldi að skuldin hefði
numið 30 þúsundum króna en annar
árásarmannanna um 200 þúsund-
um. Fórnarlambið hringdi í foreldra
sína úr prísundinni og sagðist þurfa
að borga allt að einni milljón króna
til að losna.
Mönnunum var gert að greiða
fórnarlambi sínu rúmlega 960 þús-
und krónur í miska- og skaðabætur
ásamt vöxtum.
Héldu manni föngnum næturlangt og beittu hann ofbeldi vegna skuldar:
Dæmdir fyrir hrottafengna árás
HÉRAÐSDÓMUR NORÐURLANDS EYSTRA
Mennirnir voru dæmdir í héraðsdómi á
fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Óttast þú átök vélhjólagengja?
Já 70,7%
Nei 29,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Langar þig að sjá hljómsveitina
Eagles á tónleikum hér á landi?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
WASHINGTON Hæstiréttur Banda-
ríkjanna úrskurðaði á miðviku-
dag að ekki mætti banna baptista-
kirkjunni í Westboro í Kansas að
mótmæla við útfarir hermanna.
Síðustu misseri hefur söfnuður
þessi sótt útfarir hermanna með
skilti þar sem því er haldið fram
að dauði hermanna sé refsing
guðs fyrir umburðarlyndi lands-
manna í garð samkynhneigðra.
Rétturinn úrskurðaði að fram-
koma safnaðarins væri varin af
ákvæði stjórnarskrárinnar um
málfrelsi. - þj
Hæstiréttur Bandaríkjanna:
Leyfir mótmæli
hommahatara
LÖGREGLUMÁL Átta félagar vélhjóla-
klúbbsins MC Iceland voru stöðv-
aðir á Gardemoen-flugvelli í Osló í
gær og meinað að fara inn í landið.
Þar hugðust þeir taka þátt í inn-
tökuathöfn í samtökin Hells Ang-
els, eða Vítisengla, sem veitt hafa
MC Iceland formlega inngöngu
í samtökin. Evrópska lögreglan,
Europol, skilgreinir Vítisengla
sem skipulögð glæpasamtök.
Norska lögreglan á Gardemoen
segir rökstuddan grun um að
Íslendingarnir hafi ætlað sér að
taka þátt í glæpsamlegu athæfi
þar í landi og því hafi þeim verið
meinað að koma inn í landið. Lög-
reglan hafði þá í haldi fram á
kvöld í gær en búist er við því að
þeir yfirgefi landið í dag. Einar
Ingi Marteinsson, formaður MC
Iceland, hefur að sögn lögreglu
kært brottvísunina.
MC Iceland bar áður nafnið
Fáfnir en skipti um nafn í ágúst
árið 2009 þegar klúbburinn varð
opinber stuðningsaðili hinna
alþjóðlegu Vítisengla. Síðan hefur
klúbburinn beðið eftir formlegri
inngöngu í samtökin, sem nú hefur
verið veitt.
Fulltrúar erlendra Vítisengla-
samtaka hafa margoft gert sér
ferð til Íslands á undanförnum
árum en iðulega verið meinuð inn-
ganga í landið, síðast í mars 2009.
Ragna Árnadóttir, þáverandi
dómsmálaráðherra, sagði í viðtali
við Stöð 2 í mars í fyrra að stjórn-
völd myndu leysa upp félagsskap
Vítisengla ef þeir stofnuðu félag
á Íslandi en í álitsgerð sem unnin
var fyrir ráðuneytið segir að
stjórnvöld hafi heimild til þess.
Fréttablaðið fjallaði á fimmtu-
dag um áhyggjur lögreglu af því
að átök brytust út hér á landi milli
vélhjólagengja. Nýlega voru stofn-
uð hér samtökin MC Black Pistons,
sem eru stuðningssamtök vélhjóla-
klúbbsins Outlaws, eða Útlaga, en
þeir og Vítisenglar hafa víða tekist
á um yfirráð á sviðum skipulegrar
glæpastarfsemi.
Formaður MC Black Pistons er
Jón Trausti Lúthersson, sem áður
gegndi formannsembætti hjá Fáfni
en hrökklaðist síðan úr klúbbnum.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra ræddi um skipulagða
glæpastarfsemi á Alþingi á mið-
vikudag. Hann sagði allt benda
til þess að hún færðist hér óðum í
vöxt. Hann sagðist jafnframt sann-
færður um að Íslendingar almennt
vildu ekki slíka starfsemi og hún
yrði ekki liðin. magnusl@frettabladid.is
Félagar í MC Iceland
orðnir Vítisenglar
Vélhjólaklúbburinn MC Iceland hefur fengið formlega inngöngu í alþjóðlegu
glæpasamtökin Hells Angels. Átta félögum klúbbsins var meinuð landganga við
komuna til Noregs en þeir hugðust taka þátt í inntökuathöfn í Osló í gær.
KLÚBBHÚSNÆÐI VÍTISENGLA Félagar í MC Iceland merktu klúbbhúsnæði sitt
rækilega í gær í tilefni formlegrar inngöngu klúbbsins í samtök Vítisengla.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN