Fréttablaðið - 05.03.2011, Síða 12
5. mars 2011 LAUGARDAGUR12
Ekki er ólíklegt að ár líði
frá þjóðaratkvæðagreiðslu
til dóms hjá EFTA-dóm-
stólnum, hafni þjóðin nýjum
Icesave-samningi. Þá tæki
að öllum líkindum við mála-
rekstur fyrir íslenskum
dómstólum. Þeir þyrftu svo
að leita álits EFTA-dóm-
stólsins um vafaatriði í túlk-
un á EES-samningnum.
Fari svo að Icesave-samningi við
Breta og Hollendinga verði hafnað
í þjóðaratkvæðagreiðslu í apríl má
gera ráð fyrir að ár líði þar til nið-
urstaða fæst um málið fyrir EFTA-
dómstólnum.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
hefur þegar gefið út formlega til-
kynningu um að íslenska ríkið
sé brotlegt við samninginn um
evrópska efnahagssvæðið (EES) í
Icesave-deilunni.
Ekki er þar með sagt að EFTA-
dómstóllinn dæmi Íslandi í óhag,
en bent hefur verið á að ESA hefur
eingöngu tapað tveimur af 29 samn-
ingsbrotamálum sem stofnunin
hefur farið með fyrir dómstólinn.
Íslenska ríkið hefur frest fram
yfir þjóðaratkvæðagreiðslu til að
koma fram andmælum við álit ESA.
„Næsta skref ESA yrði þá rök-
stutt álit og það hefur ekki verið
gefið út, en það er síðasti áfang-
inn í málsmeðferð ESA áður en
kemur að málshöfðun fyrir EFTA-
dómstólnum,“ segir Skúli Magnús-
son, ritari EFTA-dómstólsins.
ESA gæfi ríkinu frest til að tjá sig
um rökstudda álitið, en að því loknu
væri málið í raun tilbúið til máls-
höfðunar.
Fullnægja þarf frekari skilyrðum
Skúli segir að hjá EFTA-dómstólnum
hafi alla jafna verið skorið úr og
réttað í málum á mjög skömmum
tíma. „Um leið og mál er komið
hingað þá er það rekið eins hratt og
mögulegt er. Það á við um öll mál,“
segir hann. Málarekstur með gagna-
öflun og tilkynningum segir hann þó
taka sinn tíma. „Það verður alltaf að
búast við að minnsta kosti hálfu ári,
það væri mettími til að ljúka máli.
Meðaltíminn er eitthvað lengri,
kannski sjö til níu mánuðir.“
Skúli áréttar hins vegar að EFTA-
dómstóllinn dæmi ekki um skaða-
bótaskyldu íslenska ríkisins vegna
ætlaðs brots, annaðhvort gegn til-
skipun um innstæðutryggingar, eða
gegn grunnreglunni um bann við
mismunun á grundvelli þjóðernis.
„Mál sem ESA höfðar vegna þess-
ara ætluðu brota snýst strangt til
tekið ekki um skaðabótaskyldu, held-
ur um það hvort íslenska ríkið hafi
fullnægt skyldum sínum gagnvart
EES-samningnum. Liggi síðan fyrir
að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt,
þá kemur upp spurningin um hvort
stofnast hafi til skaðabóta-
skyldu.“
Verði íslenska ríkið talið
brotlegt þarf, að sögn Skúla,
að fullnægja frekari skil-
yrðum til þess að stofnist til
skaðabótaskyldu. „Þau eru
einkum skilyrði um að brot
sé nægjanlega alvarlegt.
Til þess að fá úr því skorið
þyrfti að höfða mál, sem ég
tel að yrði að öllum líkind-
um á Íslandi, gegn íslenska
ríkinu og íslenskur dómstóll
myndi að öllum líkindum
vísa málinu til EFTA-dóm-
stólsins og fá ráðgefandi
álit,“ segir hann og kveðst
í raun telja, að þegar um
er að ræða spurningar um
skýringu EES-reglna, þá
beri dómstólum EFTA-ríkja
skylda til að vísa málinu til
EFTA-dómstólsins. „Þó að
í orði kveðnu sé það bara
heimilt, þá eru rök sem
mæla með því að íslenskum
dómstólum sé skylt að gera
það. Annars er hætta á því
að komist sé að niðurstöðu
sem ekki er rétt.“
Sömuleiðis segir Skúli að
færi svo að íslenskir dóm-
stólar dæmdu málið með
þeim hætti að væri talið samræm-
ast EES-samningnum og skuldbind-
ingum Íslands samkvæmt honum,
þá væri hægt að sjá fyrir sér alls
konar framhald á málinu. „Milli-
ríkjadeilunni lýkur ekki endilega
við niðurstöðu íslenskra dómstóla,“
segir hann. Þannig gæti niður-
staða dómsmáls hér kallað á við-
brögð frá Evrópusambandinu og
meint brot íslenskra dómstóla gegn
EES-reglum lent aftur á borði ESA.
„Þetta er býsna flókið mat og erfitt
að sjá fyrir sér framvinduna.“
Vandi lýðræðisins
Peter C. Dyrberg, aðjúnkt við laga-
deild Háskólans í Reykjavík og for-
stöðumaður Evrópuréttarstofnun-
ar HR, segir erfitt að ætla sér að
spá fyrir um mögulega niðurstöðu
dómsmáls hér á landi um skaðabóta-
skyldu, færi svo að mál tap-
aðist fyrir EFTA-dómstóli.
„En auðvitað er töluverð
áhætta fyrir hendi,“ segir
hann og biðst undan því að
ráðleggja fólki um hvort
samþykkja eigi samning-
inn eða hafna honum í kom-
andi kosningum. „Íslenska
þjóðin verður að skera úr
um það mál,“ segir hann
og kveður vanda lýðræðis-
ins endurspeglast í spurn-
ingunni um hvort allur
þorri þjóðarinnar hafi for-
sendur til að leggja mat á
málið.
Stefán Már Stefáns-
son, prófessor við laga-
deild Háskóla Íslands,
segist sömuleiðis ekki
búinn að gera upp hug sinn
um hvernig hann hagar
atkvæði sínu í apríl, þótt
hann telji landið ekki brot-
legt við EES-samninginn.
„Ég er ekki kominn svo
langt að ég sé mjög sann-
færður á hvorn veginn sem
er. En ég veit þó eins og er
að Iceasave III er langt um
betri samningur en lagt
var upp með í fyrstu,“ segir
hann.
Fari svo að mál vegna Icesave tap-
ist fyrir EFTA-dómstólnum segir
Stefán hins vegar ekki sjálfgefið að
Bretar og Hollendingar myndu hefja
mál á hendur ríkinu fyrir íslenskum
dómstólum. „Ísland yrði að byrja á
því að fullnægja skuldbindingum
sínum og greiða þessar 20 þúsund
evrur. Svo yrðu örugglega deilur um
vexti líka. Ísland yrði að skilgreina
skyldur sínar upp á nýtt og hvenær
þeim yrði fullnægt. Ef Bretar og
Hollendingar eru ekki ánægðir með
þá niðurstöðu þá gætu þeir kært
aftur til Eftirlitsstofnunar EFTA.“
STEFÁN MÁR
STEFÁNSSON
SKÚLI
MAGNÚSSON
PETER DYRBERG
Málinu lýkur ekki hjá dómstóli EFTA
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Lög um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um
Evrópska efnahagssvæðið, nr. 21/1994.
1. gr. Nú er mál rekið fyrir héraðsdómstóli þar sem þarf að taka afstöðu til
skýringar á samningi um Evrópska efnahagssvæðið, bókunum með honum,
viðaukum við hann eða gerðum sem í viðaukunum er getið og getur þá
dómari í samræmi við 34. gr. samnings EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlits-
stofnunar og dómstóls kveðið upp úrskurð um að leitað verði ráðgefandi
álits EFTA-dómstólsins um skýringu á því atriði málsins áður en málinu er
ráðið til lykta.
Hvort sem aðili máls krefst að álits verði leitað skv. 1. mgr. eða dómari
telur þess þörf án kröfu skal dómari gefa aðilum kost á að tjá sig áður en
úrskurður verður kveðinn upp.
Kæra má úrskurð héraðsdómara skv. 1. mgr. til Hæstaréttar eftir almenn-
um reglum laga um meðferð einkamála eða meðferð [sakamála]1) eftir því
sem á við. Kæra frestar frekari aðgerðum samkvæmt úrskurðinum. [...]
Lagagreinin
óskar eftir þér
www.kronan.is
Áhugasamir
vinsamlegast
sæki um á
www.kronan.is
Kjötstjóri
FRÉTTASKÝRING: Hvernig verður ferlið hjá EFTA-dómstólnum hafni þjóðin nýjum Icesave-samningi?
ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLA Kjósandi
greiðir atkvæði í
Laugardalshöll í
mars árið 2010.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R