Fréttablaðið - 05.03.2011, Side 90

Fréttablaðið - 05.03.2011, Side 90
5. mars 2011 LAUGARDAGUR58 ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 5 31 35 0 2/ 11 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN WWW.MS.IS NÚ EINNIG FÁANLEGUR Í FERNU VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR LANDSINS! HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU, LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að HLEðSLA ER VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR Á ÍSLANDI.* HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL. MJÓLKURSAMSALAN NÝBRAGð-TEGUND *S A M K V Æ M T S Ö L U T Ö L U M A C N IE L SE N O G C A PA C E N T 2 . – 3 0. J A N Ú A R 2 01 1. 25% AF ÖLLUM JOHN FRIEDA VÖRUM Seljavegi 2 - Sími: 511 3340 www.reykjavikurapotek.is Tónlist ★★★★ Summer Echoes Sin Fang Töfrahljóðheimur Sin Fang Sin Fang er sólóverkefni Sindra Más Sigfússonar úr Seabear. Summer Echoes er önnur sólóplatan hans, en á þeirri fyrri, Clangour sem kom út árið 2008, kallaði hann sig reyndar Sin Fang Bous. Aðalsmerki Sindra eru flottar útsetningar, hljómur og hljóðheimur sem saman skapa einstaka stemningu sem er einkennandi fyrir verk hans, bæði með Seabear og Sin Fang. Veiki hlekkurinn hefur hins vegar verið lagasmíðarnar sjálfar, sem eru ekki jafn framúrskarandi þó að inn á milli leynist fín lög. Þannig er þetta líka á Summer Echoes. Sindri er í miklum ham á nýju plötunni. Tónlistin er þéttofin og hljómfögur og útsetn- ingarnar hreint út sagt frábærar. Platan hljómar svolítið einsleit í fyrsta rennsli, en þegar maður hlustar betur síast hún inn og maður tekur eftir þeim töfraheimi sem Sindri hefur skapað. Raddútsetningarnar eru til dæmis alveg frábærar og koma á óvart í lögum eins og Choir og Slow Lights. Áslátturinn er líka oft skemmtilegur og svo laumar Sindri hér og þar inn eiturtærum gítarlykkjum sem skera sig úr heildinni. Heillandi. Á heildina litið er Summer Echoes mjög flott plata. Sannkallað eyrna- konfekt. Þegar Sindri ákveður að leggja jafn mikla alúð í lagasmíðarnar og hann gerir í hljóðheiminn og útsetningarnar kemur meistaraverkið hans. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Þéttofið og hljómfagurt popp frá Sindra úr Seabear. Vinir söngkonunnar Lady Gaga eru ósáttir við kærasta hennar og halda því fram að hann sé að nota hana. Lady Gaga er einn frægasti tón- listarmaður síðari tíma en þrátt fyrir frægð, frama og ríkidæmi virðist hún ekki búa við velgengni þegar kemur að ástinni. Söngkon- an tók aftur saman við gamlan kærasta, Luc Carl, og vilja vinir hennar meina að Carl sé ekki góður pappír. Lady Gaga og Carl áttu í ára- löngu ástarsambandi löngu áður en stúlkan varð fræg en tóku aftur upp þráðinn fyrir tæpu ári. „Luc notfærði sér frægð Gaga til að landa útgáfusamningi fyrir fyrstu bók sína og Gaga hefur líka verið dugleg við að auglýsa bókina í hinum ýmsu viðtölum,“ var haft eftir einum vini söngkonunnar, sem vill jafnframt meina að söng- konan geri sér grein fyrir því að Carl sé að nota hana. „Innst inni veit hún að Luc er aðeins með henni vegna frægðar hennar og ríkidæmis. Hann vildi hana ekki áður en hún varð fræg, þá skildi hann hana eftir í sárum en svo kom hann skríðandi aftur. Luc beitir hana andlegu ofbeldi, hann hefur hótað því að ef hún reiti hann til reiði muni hann eyðileggja mannorð hennar. Hann hefur líka montað sig af því að geta stórgrætt á því að selja kyn- lífsspólur sem hann hefur tekið af sér og Gaga,“ sagði vinurinn, sem vill meina að Gaga muni ekki vera sú sem slíti sambandinu. „Hún hefur mjög lítið sjálfsálit og vegna þessa heldur hún að hún geti ekki gert betur en Luc.“ Lady Gaga óheppin í ástum ÓHEPPIN Í ÁSTUM Lady Gaga er ekki heppin í ástum. Vinir hennar óttast að kærasti hennar, Luc Carl, sé aðeins að nota hana vegna frægðar hennar. NORDICPHOTOS/GETTY Leikarinn Zac Efron á að hafa komið öllum á óvart þegar hann sást leiða karlmann í veislu einni í Hollywood fyrir stuttu. Tímarit- ið The National Enquirer heldur því jafnframt fram að Efron hafi einnig daðrað duglega við mann- inn og það í augnsýn fyrr verandi kærustunnar, leikkonunnar Vanessu Hudgens. „Það kom mér á óvart hversu afslappaður hann var í kringum þennan mann. Hann gekk um bros- andi og hélt í hendina á honum. Menn veltu því fyrir sér hvort þetta væri sett á svið til að gera Vanessu afbrýðisama, en satt að segja virt- ist Zac afskaplega hrifinn af mann- inum,“ var haft eftir sjónarvotti. Fréttirnar ættu ekki að koma mörgum á óvart því mikið hefur verið slúðrað um kynhneigð Efrons allt frá því hann sló í gegn í dans- og söngvamyndinni High School Musical. „Vanessa virtist lítið láta þetta á sig fá, hún og Zac heilsuðust vinalega en svo héldu þau sig hvort í sínu horni. Vanessa skemmti sér með vinkonum sínum á meðan öll athygli Zacs var á þessum manni.“ Efron daðraði við annan karlmann MIKIÐ SLÚÐRAÐ Zac Efron á að hafa daðrað duglega við karlmann í veislu í Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTY Gamanleikarinn Mike Myers kvæntist í laumi kærustu sinni, Kelly Tisdale, í lok síðasta árs. Parið kynntist árið 2006 en hefur reynt að halda sambandi sínu út af fyrir sig. Kelly Tisdale er fyrrverandi kærasta tónlistarmannsins Moby og saman reka þau testofu í New York þar sem hún og Myers kynntust. Þegar National Enquirer hafði samband við Myers sagði hann aðeins: „Ég er hissa að þið höfðuð ekki frétt af þessu fyrr.“ Kvæntur maður
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.