Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 102
5. mars 2011 LAUGARDAGUR70PERSÓNAN
„Þetta er auðvitað lygilegt,“ segir
leikarinn Karl Ágúst Úlfsson.
Fjögur hundraðasti þáttur
Spaugstofunnar verður sýndur á
Stöð 2 í kvöld. Þættirnir hófust í
Ríkissjónvarpinu árið 1985 og hafa
verið sýndir við miklar vinsældir
allar götur síðan, eða í 26 ár. „Upp-
haflega, þegar við gerðum samn-
ing um að gera vikulega frétta-
þætti, réði Hrafn Gunnlaugsson,
þáverandi dagskrárstjóri, okkur
til að gera fjóra þætti til reynslu.
Hann sagði að ef þeir virkuðu væri
hann til í að framlengja samning-
inn. Núna eru þeir sem sagt orðnir
fjögur hundruð,“ segir Karl Ágúst.
Þátturinn í kvöld verður með
örlítið breyttu sniði en undan farið.
„Við búum okkur til verðlaunaaf-
hendingu sem minnir kannski á
Óskarinn eða Edduna. En við erum
kannski að verðlauna fyrir aðra
hluti en á þeim ágætu hátíðum.“
Aðspurður segir hann að
veturinn hjá nýjum vinnuveitanda
hafi gengið með ólíkindum vel.
„Við erum mjög ánægðir og það
var tekið mjög vel á móti okkur
á nýjum vinnustað.“ Hann segir
áhorfið einnig mjög viðunandi, að
því hann best veit.
Fjórir þættir eru eftir af Spaug-
stofunni á þessum vetri. Karl
Ágúst og félagar fara í frí í lok
mars en snúa aftur á skjáinn
næsta haust, enda undirrituðu þeir
tveggja ára samning við Stöð 2 í
fyrra. - fb
Lygilegt langlífi Spaugstofunnar
400 ÞÆTTIR Spaugstofan sýnir 400. þátt sinn á Stöð 2 í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hallgrímur Hansen
Aldur: Fertug-
ur … Lífið byrjar þá.
Starf: Allt. Þegar
maður finnur
ánægju í leiðinlegu
vinnunni getur
maður valið
skemmtilegu vinnuna.
Fjölskylda: Ég kem fram við alla
eins og bræður mína og systur. En
ég elska mömmu mína.
Búseta: Þar sem ég halla höfði
mínu, þar á ég heima.
Stjörnumerki: Ég er krabbi í
evrópska, en hundur í kínverska.
Sem er fyndið því ég á hund.
Halli Hansen varð óvænt andlit
rúmenska vodkans Stalinskaya í
vikunni.
„Það er ánægjulegt að sjá þenn-
an áhuga á bæði RÚV og frétta-
stofunni. En þetta lýsir jafnframt
atvinnuástandinu,“ segir Óðinn
Jónsson, fréttastjóri RÚV.
Ríkissjónvarpið auglýsti á dög-
unum nokkrar afleysingastöður
á fréttastofunni. Alls bárust 393
umsóknir um 5-7 stöður í Efsta-
leiti og 16 umsóknir um eina stöðu
á Akureyri. „Þetta kom skemmti-
lega á óvart,“ segir Óðinn, sem
segir mikið af flottum umsóknum
hafa borist frá vel menntuðu og
áhugaverðu fólki.
Af þessum fjögur hundruð
umsækjendum voru á milli 20-30
boðaðir í viðtöl og þrettán þeirra
fengu svo að þreyta stíft frétta-
mannapróf. Búið er að ganga frá
ráðningum á þremur fréttamönn-
um og býst Óðinn við að ganga
frá því sem á vantar eftir helgi.
Snæfríður Ingadóttir, sem meðal
annars hefur starfað á DV, Frétta-
blaðinu og Skjá einum, var ráðin
sem fréttamaður á Akureyri og
Morgunblaðsmennirnir fyrrver-
andi Jóhann Bjarni Kolbeinsson
og Dagur Gunnarsson munu hefja
störf í höfuðborginni innan tíðar.
„Það er augljóslega margt ungt
fólk að leita eftir áhugaverðu
starfi. Því miður höfum við ekki
pláss fyrir fleiri að sinni,“ segir
Óðinn. - hdm
Fjögur hundruð vilja vera fréttamenn á RÚV
NÝ ANDLIT Á
SKJÁNUM
Þau Snæfríður Inga-
dóttir og Jóhann Bjarni
Kolbeinsson koma til
starfa á fréttastofu Ríkis-
sjónvarpsins.
„Viðtökurnar hafa verið yndis-
legar. Það er rosalega gaman að
syngja fyrir eldra fólk,“ segir tón-
listarmaðurinn Svavar Knútur.
Svavar Knútur gaf út plöt-
una Amma í fyrra. Á henni flyt-
ur hann gamlar perlur sem hann
hefur tekið ástfóstri við, en platan
er tileinkuð ömmum hans. Svavar
hefur fylgt plötunni eftir í félags-
miðstöðvum eldri borgara víða
um land og verið vel tekið. „Það
er svo mikil æskudýrkun í sam-
félaginu,“ segir Svavar ákveðinn.
„Fólk hangir á að eina fólkið sem
eigi að fá tónlist og menningu sé
ungt fólk. Það eru hópar af eldri
borgurum sem vilja fá tónlist. Það
er gaman að teygja sig til þessa
hóps sem hefur verið vanræktur
af yngri kynslóðinni.“
Svavar segist fá mikið út úr
því að spila fyrir eldri borgara
og játar að hafa fengið sérstak-
ar gjafir frá grúppíunum. „Það
sem er skemmtilegt þegar maður
er farinn að njóta ömmuhylli, þá
fyllast þær ömmubarnaást,“ segir
hann. „Ég hef verið að grínast með
að Friðrik Dór fái örugglega G-
strengi upp á svið, en ég fæ lopa-
peysur. Þetta er heill heimur sem
ég er að uppgötva – alveg æðislegt
fólk, opið og skemmtilegt. Alltaf til
í að taka vel á móti manni. Ég held
að það hafi allir rosalega gott af
því að umgangast eldri borgara.“
Spurður hvort gömlu karlarnir
séu afbrýðisamir og gruni hann
jafnvel um að einoka kvenhyllina
segist Svavar aðeins einu sinni
hafa lent í því að hindra gamlan
mann. „Það var svolítið viðkvæmt,
en endaði vel. Allir voru kátir á
eftir,“ segir Svavar léttur. „Ann-
ars eru karlarnir hressir. Þeir eru
alltaf aðeins færri, enda deyja þeir
fyrr. Konurnar eru margar miðað
við karlana, þannig að þeir hafa
nóg fyrir sig – eru eins og hanar í
hænsnakofa.“
Svavar segir að samfélagið sé
gegnumsýrt af fordómum gagn-
vart eldra fólki, en hann segir að
ótti fólks við að eldast sé ástæðu-
laus. „Þetta fólk er ekki síður með
lifandi og skemmtilegt tilfinninga-
líf og er gratt. Það er allt í gangi!“
Svavar áréttar að hann sé ekki
hættur að spila fyrir yngra fólk,
heldur vilji hann einfaldlega ná til
fjölbreyttra hópa. „Eldri borgar-
ar eru hluti af fólkinu sem ég vil
syngja fyrir,“ segir hann. „Maður
á ekki að vanrækja þá. Það er ótrú-
lega gaman að mæta til þeirra og
syngja.“
Svavar Knútur kemur fram
á Akranesi á mánudag og er svo
á leiðinni í tónleikaferðalag til
Þýskalands og Frakklands.
atlifannar@frettabladid.is
SVAVAR KNÚTUR: GAMAN AÐ SYNGJA FYRIR ELDRI BORGARA
Fékk lopapeysu upp á
svið frá aldraðri grúppíu
PEYSUR Í STAÐ G-STRENGJA Svavar Knútur í lopapeysu sem hann fékk gefins frá
ömmu sem heillaðist upp úr skónum þegar hún sá hann syngja. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Mið 9.3. Kl. 19:00
Lau 12.3. Kl. 19:00
Mið 16.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00
Lau 26.3. Kl. 19:00
Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn.
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 27.3. Kl. 14:00
Sun 27.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Lau 5.3. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 11.3. Kl. 20:00 3. sýn
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Fös 4.3. Kl. 20:00 Fös 18.3. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 10.3. Kl. 20:00 Frums.
Fös 11.3. Kl. 20:00
Sun 13.3. Kl. 20:00
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
U
U
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
„GRÍÐARLEGA
ÁHRIFAMIKIL“
Kolbrún Bergþórsdótt ir / Kiljan
Heildarlisti 23.02. - 01.03.11
2. prentun væntanleg
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.