Fréttablaðið - 05.03.2011, Page 104
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Uppistandið er ekkert grín
Mikill meðbyr er með íslenskum
uppistöndurum um þessar mundir.
Ari Eldjárn og félagar hans í Mið-
Íslandi njóta fáheyrðra vinsælda
og fylltu til að mynda Þjóðleikhús-
kjallarann tvö kvöld í röð í vikunni.
Drengirnir taka gríni sínu alls ekki
létt og líta orðið á uppistandið sem
vinnu sem ber að taka alvarlega.
Því hafa þeir leigt sér skrifstofurými
á efstu hæð hússins við Laugaveg
26. Þar prófa þeir nýtt efni á
daginn og bóka gigg fram tímann.
Annar vinsæll grínisti er í sömu
sporum. Eftirherman
Sólmundur Hólm
er kominn með
skrifstofuaðstöðu
við Skólavörðustíg
og mun vera nokkur
samgangur þarna á
milli. Ný kynslóð grín-
ara hefur greinilega
fullan hug á að
endast lengi í
bransanum.
B L Ó M A B Ú Ð G L Æ S I B Æ
S : 5 6 8 - 9 1 2 0
Stórar rósir 490 kr
Auglýsingasími
Forsetinn, páfinn og
heimshornaflakkarinn
Mikið er gert úr afrekum og ferða-
lögum Guðríðar Þorbjarnardóttur
í tengslum við Rómarför forseta
Íslands. Þar færði hann páfa að
gjöf styttu af þessari sögufrægu
konu, sem er meðal annars sögð
hafa gengið um alla Evrópu og hitt
páfa. Staðreyndin er þó sú að lítið
er fjallað um Guðríði í sögulegum
heimildum og þær sem til eru,
Eiríks saga rauða og Grænlend-
ingabók, eru taldar frekar ótraustar
í sagnfræðilegu tilliti. Þar segir eitt
um meinta páfaheimsókn: „þá
fór Guðríður utan og gekk suður“.
Spurning hvort þessi
neðanmálsgrein
hafi skilað sér
til páfa, enda
ekki eins góð
frásögn.
- hdm / þj
1 Bauð upp á kynlífssýningu
í skólastofunni
2 „Við erum ekki í stríði
við neinn“
3 Vilja þurrfrysta lík og
gróðursetja tré ofan á leiðið
4 Köngulær leita í Mözdur
5 Lögregla rannsakar mál
Gunnars