Sameiningin - 01.01.1925, Blaðsíða 15
9
ameríslvum kirkjum til minningar urn þa<5, aö einmitt á þeim degi
eru liÖin rétt ioo ár frá því skipiö “Restaurationen” lagÖi af stað
frá Stavanger meö fyrsta hóp norskra innflytjenda, er fyrstu ný-
lendu stofnaði í Ameríku. Að sönnu hafði slæðingur Norð-
manna komiö fyr, og' nokkrir Norðmenn voru í liði Washingtons
í frelsisstríðinu. En verulegt landnám þeirra hófst ekki fyr en
með “stóra hópnum” 1825.
Norskir innflytjendur settust ekki aö í borgum landsins,.
heldur héldu út á landsbygðina. Þeir lögðu undir sig hið frjó-
sama land Mississippi-dalsíns og síðar Rauðárdalinn. Þeir eign-
uðust frjósamasta akuryrkjuland Bandaríkja. Komust þeir fljótt
í góð efni og eru norskir bændur yfirleitt ríkir. . Norðmenn hafa
verið viöurkendir með allra nýtustu borgurum landsins. Betur
þóttu þeir að sér en flestir aörir innflytjendur. Þeir voru kristn-
ir menn, uppaldir í lúterskri kirkju. Trúarlirögð sín fluttu þeir
með sér og hafa haldið vel trú sína. Hvar sem hópur Norð-
manna settist að, var myndaður söfnuður tafarlaust, og reist
kirkja svo fljótt, sem unt var. Er þeirra kirkjulíf í miklum
blóma. þó nú sé ensk tunga töluð 'í flestum kirkjum þeirra. Skól-
ar Norðmanna hafa veriö margir og sumir ágætir. Hafa þeir
lagt hina mestu rækt við mentamál sín. Margir menn af norsk-
um ættum hafa oröið þjóðkunnir menn og gegnt sumurn vanda-
mestu trúnaðarstöðum þjóðfélagsins.
Með hátíðarhaldinu í sumar hafa Norðmenn það tvent fyrir
augum, aff heiðra minningu feðra sinna, brautryðjendanna
hraustu, og rifja upp sögu sína á liðinni öld, og aff sýna hérlend-
um samborgurum sínum nokkur rnerki þess, hvert gildi norræn
menning hefir haft fyrir þjóðlífið ameríska.
50 ára bygð Islendinga í Vesturheimi.
Á þessu ári eru liðin fimtíu ár, síðan elztu nýlendur íslendinga
voru stofnaðar. Að sönnu hófst landnámið nokkru fyr, um
1870. Smá-nýlendur voru stofnaðar í Wisconsin og Nebraska
innan Bandaríkja og í Ontario í Canada á árunurn 1870—1875.
En j)ær bygðir lögöust niöur að mestu eða öllu leyti. Allra fyrst
komu íslendingar ti! Milwaukee, Wis., og enn er einstaka íslend-
ing að finna í þeirri borg. Nýlendan á Washington-eyjunni í
Michigan-vatni. er enn við lýði, og er elzt þeirra bygða, sem nú
eru, stofnuð 1872.
Af aðal-bygðum Ísléndinga hér í álfu verða þrjár fimtugar