Sameiningin - 01.01.1925, Blaðsíða 36
30
Ungmennaþing,
3. og 4. febrúar 1925.
Eins og áíSur hefir verig auglýst, verður þing ungmennafélaga
ikirkjufélagsins haldiS i Selkirk þann 3. og 4. febrúar næstk. Þingið
verSur sett kl. 2 e. h. á þriðjudaginn. VerSur séra Friðrik Hall-
grímsson forstöðumaður.
Samkvæmt bending frá siðasta kirkjuþingi, er skorað á alla
söfnuði að senda erindreka, ekki að eins frá ungmennafélögum,
heldur líka frá sd.skólum. Vonast er eftir sem mestri samvinnu
milli sd.skóla og ungmennafélaga.
Erindi verða flutt um eftirfylgjandi efni:
1. Hvernig getur ungmennafélag starfað sem bezt—
(aj með söfnuði sínum?
(b) með kirkjufélaginu?
(c) með Kristi ?
2. Ungmennafélög og trúboð.
3. Ungmennafélög og kristileg uppfræðsla.
Eru erindrekar sérstaklega beðnir að hugsa um þessi málefni
og vera reiðubúnir að taka til máls. Auk þess eru allir erindrekar
beðnir að koma fram með hvað annað, sem þeitn finst áriðandi og
viðeigandi. Búist er við, að sem allra flestir taki þátt í umræðum.
Munið, að erindrekar eru boðnir frá öllum—
1. ungmennafélögum;
2. sunnudagsskólum;
3. Dorkas-félögum; og
4. söfnuðum, sem hafa nú þegar engan ungmenna félags-
skap.
Og svo loksins eru hinir ýmsu söfnuðir beðnir að senda nöfn
erindrekanna sem allra fyrst til Miss D. Benson, Selkirk, Man, svo
hægt sé að sjá þeim fyrir gististöðum.
FjölmenniS þetta þing. —Nefndin.
Til skrifara safnaðanna.
Eg hefi, eins og vant er, sent öllum söfnuðum kirkjufélagsins
eyðublöð undir ársskýrslur fyrir síðastliðið ár. Þær skýrslur bið
eg skrifarana um að senda til séra Sigurðar Ólafssonar, Box 566,
Gimli, Man., sem tekur :við 4krifarastörfum kirkjufélagsins við
burtför mína. Reikningarnir fyrir ársgjöldum, sem fylgja eyðu-
blöðunum, eru skrifararnir vinsamlega 'beðnir um að annast um að
verði borgaðir féhirði, hr. Einni Johnson, 666 Sargent 'Ave..
Winnipeg.
Baldur, Man., 15. janúar 1925, ,
F. ■ Hattgrímsson.