Sameiningin - 01.01.1925, Blaðsíða 16
10
á þessu ári: Minnesota, Wjnnipeg og Nýja ísland. Árit5 1875
tók íslenzkt fólk sér bólfestu á öllum þessum stöSum og hafa þær
bygðir haldist síÖan. Ekki vitum vér, i hverri bygðinni íslend-
ingur festi sér fyrst land. En kunnugt er oss um þaö, aÖ þaÖ var
4. júlí 1875, að Gunnlaugur Pétursson frá Hákonarstööum í
Vopnafirði nam land 'í Lyon County, Minnesota, á bökkum
Yellow Medicine-árinnar. Nefndi hann bæ sinn Hákonarstaði
•og bjó þar til dauðadags. Var hann fyrstur landnemi í Minne-
sota, íslenzkur. Kom þangað frá Dane Co. i Wisconsin, með
konu og tvö börn ung. Drógu uxar fólk og farangur og gengu
þrjár vikur í þá ferð.
Sá maður, sem foringi var þeirra, er námu Nýja Island, og
telja má föður þeirrar bygðar og raunar bygðarinnar íslenzku i
Winnipeg líka, var Sigtryggur Jónasson. Er hann enn á lífi, einn
hinna fáu landnámsmanna, sem nú eru ofan moldar. Skyldi hon-
um hverskonar sómi sýndur þetta júbíl-ár.
Ekki er ólíklegt, að á þessu ári rifji menn upp gamlar land-
námssögur sínar, og mætti það vel verða til þess að aúka samúð
og gleði hjá börnum landnemanna.
Mörgum þykir ef til vill fróðlegt að vita, hversu margir
íslendingar séu búsettir í Ameríku. Opinberar skýrslur höf-
um vér ekki um tölu íslendinga í Bandaríkjum. Lætur að lík-
indum nærri, að þeir séu 5,000, þegar taldir eru þeir, sem
fæddir eru þar i landi af íslenzku foreldri.
Um tölu Islendinga í Canada er öðru máli að gegna. Þar
höfum vér nákvæma skýrslu frá hagstofu Canad'a-stjórnar.
Manntal 'í Canada var síðast telíið árið 1921. Voru það ár í
Canada 7,135, þeir er fæddir voru á íslandi og 8,741, þeir er í
Canada voru fæddir af íslenzku foreldri, eða samtals 15,876.
1 Winnipeg voru Islendingar árið 1921, innfluttir og innfæddir,
2,273 tölu.
Eftirtektarvert er það, að þegar skýrslan var samin nú
fyrir fjórum árurn, eru þeir, sem þá voru á lífi af þeim, sem
fluttu inn 'í landið frá íslandi, orðnir miklu færri en hinir, sem
í landinu eru fæddir. Með hverju ári fækkar óðurn þeim, sem
fæddir eru á íslandi. En börnin og barnabörnin eiga að halda
á lofti minningu þeirra.