Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 17

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 17
11 Dauðadó mur, íslenzkir menn í öllu landi hafa komist í mikla geðshrær- ingu út af þvi, að íslendingur hefir veriÖ kærður um morð og dæmdur til lífláts. ÞaÖ sést af því, hversu almenn samskotin eru í varnarsjóðinn og af undirskriftunum undir bænarskrána,, aS menn hryllir við því, að maðurinn sé líflátinn. Það er von. En það sem gildir um þennan ógæfusama landa vorn i Edmon- ton, gildir og um aðra menn. íslenzkir borgarar ættu að beita áhrifum sínum, hvar sem þeir eru, til þess, að fá úr gildi num- in þau lög, sem slcipa fyrir um líflát sákamanna. Kristileg mannúSar-tilfinning þolir ekki lengur dauða-hegninguna. Fyrir þv'í er réttlætis-tilfinningunni ekki gert rangt til. Við kröfum hennar má e'kki daufheyrast. Og út af þessu, sem fyrir hefir komið, ættu allir íslendingar að hugleiða það alvarlega, hvert gáleysið og guðleysið stefnir. Þvi lögmáli verður ekki breytt, að þaö, sem maður sáir, það mun hann og uppskera. ----------o---------- Trúarlíf Páls postula. Eftir Charles E- Jefferson. Þungamiðjan í karaktér Páls, það einkennið, sem dýpstar átti rætur og öflugast var í .sálarlífi hans, var trúin. Hjá sumum mönn- um er trúin eins og út af fyrir sig, en Páli var hún, alt f öllu. Sum- ir menn eru trúaðir á stórhátíðum kirkjunnar; aðrir eru trúaðir að- eins á alvarlegustu stundum lífsins, í sýnilegum voða, í þungum sjúkdómum, eða þegar dauðinn er framundan. Páll lifði í and- rúmslofti trúarinrrar alla daga jafnt og öllum stundum. Hann gaf sig ekki mjög mikið við heimspeki, bókmentum eða listum; við kaupskap, mannfélagsmálum eða stjórnvísi; hann var allur með lífi og sál á sviði trúarinnar. Engin lýsing á honum getur verið sönn, nema hún gefi nægilegan gaum að lífi hans í Guði. Án trúarinnar er hann og verður óráðin gáta. Styrkur hans allur var í trúnni, hreytni hans gjörvöll átti rætur þar. Hann bjó yfir trú svo djúpri, svo eldheitri, svo kröftugri, að vel má segja, að hann hafi verið gæddur trúarlegri andagift. Hér er átt við þá, .afstöðu gagnvart skaparanum, sem okkur er sjálfráð eða býr í meðvitundinni. Páll bjó yfir ákaflega glöggri og lifandi meðvitund um .samfélag sitt við eilífan Guð. 1 Guði lifði hann og hrærðist, ekki ósjálfrátt, eins og segja má um okkur all- flesta, heldur með fullri vitund. Hann var viss ,um Guð; viss um tilveru hans, uni persónuleik hans og algæzku, um beina hluttöku

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.