Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1925, Page 20

Sameiningin - 01.01.1925, Page 20
14 hann beindi til frelsarans. ÞaS var einföld spurning: “Hver ert þú, herra ?’’ Og þegar Drottinn svaraöi honum, þá var næsta bænin líka spurning: “Herra, hvaS vilt þú aS eg gjöri?” Páll skýrir líka frá því, hvernig hann baSst fyrir í musterinu. Bænin, sem hann lýsir, er brot úr samtali, eins ?og hinar fyrri. Hann segir frá orSum Drottins, frá sínum orSum, og svo aftur frá því, sem Drott- inu sagSi. ÞaS er trú Páls, aS GuS geti talaS viS mennina, aö hann gjöri þaö, og aS mönnunum sé auðiS, meS því aS leita beint til Drottins, aS ganga úr skugga um vilja hans. Stundum sagSi Páll alls ekkert, þegar hann baöst fyrir. OrSlausar bænir eru til. Stund- um (kom aö eins eitt orS frá vörum hans, orSiö “faSir”, en óskir hjartans og tilfinningar voru allar í því eina oröi. Stundum var hann orSlaus; þá var eins og hann væri allur í tilbeiSslunni, og andi GuSs hiö innra í honum bæri frani dularfulla löngun sálarinnar í andvörpum, sem engin orS gátu náS yfir. Stundum var samneytiö leiSslukent, og sálin fyltist friöi, sem æSri var öllum skilningi. Persónuleg sérkenni Páls koma fram í bænum hans ljós og skýr, eins og í ljóma, sem kemur ofan aö. GóSsemi hans og viS- kvæmni, óeigingirni hans, háfleygi hugsunar og andleg raun, eld- móSur, sálargöfgi og fórnfýsi, birtast þar i allri sinni fágætu feg- urö, • eins og manni sé gefiS ómetanlegt færi á aS skygnast inn í instu sálarfylgsni postulans. 1 bænum Páls höfum vér opinberun frá himnum. Páli var ljúft aö ræöa urn trúarefni. Sá þátturinn i sjálfs.hans æfiferli, sem honum var sérstaklega dýrmætur og' heillandi, var trú- arreynslan. Plann haföi unun af aS segja þá sögu; sagSi hana hverjum' þeim , sem fékst til aS hlusta. Bann sagöi hana jafnvel skrílnum í Jerúsalem, sem vildi tæta hann í sundur. Hann haföi hana yfir i Sesareu, fyrir landstjóra rómverskum og GySingi, sem bar konungsnafn. Öll hans orö og verk áttu rætur i reynslu þeirri hinni undursamlegu, sem fyrir hann kom á leiöinni til Damaskus. Þar skein dýröarljómi Guös inn í hjarta hans; hann eygSi þá dýrö í ásjónu Jesú Krists. Frá þeirri stund var hann sí-glaður, þegar hann talaöi um Guö. Hvort sem hann átti tal viö heimspekinga i Aþenuborg eöa hændafólk i Lýstru, þá var ljúfasta umtalsefniö um GuS sjálfan. “Eg tilheyri Guöi, eg þjóna honum og treysti hon- um” — svo vitnaöi hann djarfmannlega fyrir samferöamönnum sínum á skipsflakinu. MeS þeim orSum sefaöi hann hjörtun, sem haldin voru af dauöans angist, og lífgaöi vonina, >sem dáin var út í brjóstum þeirra- Hnossiö, sem Páll sóktist eftir og mat allra mest, var aö geta orSiö GuSi líkur. Margur maöur hefir látiS sér mest um þaö hug- aö, aö geta umflúiö komandi reiöi. Ekki var Páli svo fariö. Hon- um stóö enginn ótti af helvíti, og hann seildist aldrei eftir því efni til umtals, svo aS' séö veröi. Refsidómar skipa aldrei háan sess eSa tignarlegan i ritum hans. Margir góöir menn og guöhræddir hafa

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.