Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 23

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 23
17 Kynnisför til himnaríkis. “Kæru vinir,” mælti prestur, er hann hóf ræSu sína. “Tveir eru þeir lilutir, sem viö megum ekki án vera, ef viö eigum að geta lifaS hei'ðarlegu og ánægjulegu lífi. Er annar nauðsynlegur til sáluhjálp- ar, en hinn ómissandi skilyrði lífsgleðinnar. Þessir hlutir tveir eru: óbilandi trú á Guð og óslökkvandi gamansemi. Gleði trúarinnar hefir verið stolið frá ntörgum, svo nú þýðir sú gleði litið meir en þá notalegu tilfinningu, sem surnir njóta við það, að sitja sparibúnir í kirkjustólum og vera með sjálfum sér sannfærðir um það, að þeir sé frábærlega heiðvirðir menn. En gleði er sólskin í hjarta, græsku- laust gaman, sjálfvakin glaðværð; sú vitund, að gamansemin sé ná- skyld guðhræðslunni og að hláturinn sé Guðs gjöf. Með þessum fyrirvara ætla eg að leggja út af 2. versinu í 14. kap. Jóhannesar Guðspjalls: I húsi f'óSur míns eru mörg híbýli. En í stað venjulegrar prédikunar ætla eg að segja ykkur merkilegan draum, sem mig dreymdi nýlega. Það var einn þessara drauma, sem virðast engan endir hafa; maður vaknar við og við og hugurinn heldur sér við efnið; svo sofnar maður aftur og draumurinn heldur áfram eins og ekkert hefði ískorist. Mig dreymdi það, að mér var leyft að koma, litla stund til himna- ríkis, að sönnu ekki í sjálfan helgidóminn, heldur í forgarðana. Þar fékk eg að ganga um strætin miklu og hafði fyrir leiðsögumann ekki minniháttar höfðingja en heilagan Pétur sjálfan. Mér er óhætt að segja ykkur frá því, að’ hliðavörður hinnar himnesku borgar er útlits mjög svipaður því, sem almenningur hefir ímyndað sér; öldurmannlegur á velli, tignarlegur ásýndar, með snjó- hvítt hár, er nær honum alt að beltisstað. Hann var klæddur hvítum flakandi klæðum, saumuðum silfri og lögðum gulli, og bar á höfði mítur alsett gimsteinum. Við belti sér bar hann tvo gull-lykla afar- stóra: með öðrum lauk hann upp hliðum borgarinnar himnesku, eti með hin.um lokaði hann þeim. “Þú skilur það,” þóknaðist postulanum að segja við mig, er hann hafði heilsað mér, “að það er ekki vegna nokkurrar verðskuld- unar þinnar, að þér eru veitt þessi hlunnindi. Yfirvöldin hér hafa skipað fyrir unt stöku heimsóknir manna neðanað. Það veldur okk- ur stundum gremju, hversu rangt er frá því skýrt, sem hér gerist, og okkur hugkvæmdist, að nokkuð gott gæti stafað af því, að einstaka sinnum fengju einhverjir ykkar að lita hér inn snöggsinnis. Hag- nýttu þér nú þessa stund sem bezt, því það er engin trygging fyrir því, að þn komir hér nokkurn tíma aftur.” Hann sagði þetta blátt áfram, eins og til að láta mér skiljast. að persónulega kæmi eg þar alls ekki til greina, og á röddinni mátti heyra, að honum var ekkert gefið um þessa tilraun. Mér fanst sann- ast að segja, að heilagur Pétur enn þá, eftir nítján alda lífsreynslu

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.