Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 30

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 30
24 “Þetta?” hrópar frú Au'ðnan. “Þettað er höllin, sem yður er fyrirbúin, frú mín góð.” “Nú, þetta er þó áreiðanlega einhver vitleysa,” segir frú Auðn- an, og má sjá að nú er hana ekki' farið að gilda einu. Enn einu sinni lítur Pétur á minnisblöðin og les skipanina, sem engillinn hafði fært honum. “Eg get fullvssað yður um það, að þetta er engin vitleysa. Þér getið séð það hér svart á hvítu, að þetta er höllin, sem yður er tilreidd.” “En eg segi yður satt, eg fæ ekki afborið það,” sagir frú Auðn- an og liggur við gráti. < “Þvert á móti; þér munuð venjast því með tímanum, og í þess- um kofa verðið þér farsælli, en þér nokkurn tíma hafið verið á æfi yðar.” “Ómögulegt,” andvarpaði frú Auðnan. “Jú,” svaraði Pétur. “Þetta er himnaríki og hér er enginn ó- ánægður til lengdar.” “Þokast maður héri upp á við, — hægt, en áreiðanlega?” segir frú Auðnan auðmjúklega. “Meir en svo, vér erum framsæknir í himnaríki,” svaraði Pétur og brosti. Þar skildum vér við frú Auðnan, og fór hún að koma sér íyrir sem bezt hún gat, og að vörmu spori vorum vér komnir aftur að kliðinu mikla. Nú rétti heilagur Pétur mér hönd sína til þess að eg skyldi kyssa á hringinn. “Eg er hræddur um, að nú sé korninn tími til þess að bjóða þér — ætli við höfum það ekki -— au revoir.” “Eg vonast til—” byrjaði eg með ákefð, en postula-höfðinginn tók frarn í fyrir mér. “Meðan lífsmark er, er von. Sonur minn, hvað sem frú Auðn- an segir, þá eru sum þessi gömlu spakmæli einfaldasta og beinasta aðferðin, til þess að láta sannleikann koma í ljós.” Hann lauk upp hliðinu og eg horfði út í alheiminn. Eg var hræddur. Einkum skelfdist eg við að horfa á stóra skýflóka mann- legra sálna, er svifu fram hjá langt upp í loftið, en veittul því ekki eftirtekt, að hliðið var opið. “Hverir eru þetta?” hvíslaði eg að Verndarengli mínum. En heilagur Pétur hafði heyrt það og svaraði: “Það eru ótelj- andi herskarar þeirra manna, sem þóttust sannfærðir um það, að allir væru á leið til himnaríkis, og einu gilti, hver leið væri far- in þangað. Þeir verða að bíða lengur og ráfa lengra en flestir aðr- ir, — en við erum þolinmóðir.” Verndarengillinn minn stakk hönd sinni í lófa mér. “Lokaðu nú augunum, vertu óhræddur, eftir augnablik vaknar þú aftur heima hjá þér á jörðinni.” “Vertu sæll, góði vinur,” sagði eg.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.