Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1925, Side 10

Sameiningin - 01.04.1925, Side 10
104 leyti snjólausar, eins og þá, og sama einmana-tilfinningin setti að mér í Montana og áSur. Eg var þó svo heppinn, að fá a8 sjá meira af Klettafjöllunum, því nú fór eg að degi til gegnum mesta fjalllendið, en síðast fór eg þaÖ í myrkri. Ekki eru þau mjög tilkomumikil, i samanburÖi viö Cascade-fjöllin meÖ fram strand- lengju Kyrrahafsins, en alt eru fjöll i augum þeirra, sem ekki hafa öðru vanist en Pembina-fjöllum. Eg skil vel, hve mjög þeir sakna fjallanna, sem þeim eru vanir, þvi ætti eg a8 dvelja langdvölum burtu frá sléttunum frjósömu og farsælu, sem eg hefi vanist frá barnæsku, mundi eg sakna þeirra mjög. Þær eiga fegurö líka, sem heillar, þó meÖ ööru móti sé. — Þegar komiÖ var vestur fyrir Spokane í Washington-ríki, varÖ lestin fyrir töf. Miklar rigningar höfÖu gengiö og flóÖ hafÖi þvegið burt smábrú. Fyrst var löng bið, og svo var snúiö við aftur fimtíu m'ílur til Spokane. Var farþegum þar bætt á aðra lest, er fór lengri leið, og kom eg til Seattle kl. 2.30 á sunnudags- morgun, í stað kl. 8.30 á laugardagsmorgun, eins og feröaáætl- unin gerði ráð fyrir. En gott var að lenda ekki í flóðinu, og gott var að sjá framan i íslenzk andlit þeirra, sem beðið höfðu meS þolinmæði þess, að lestin kæmi. Meðan eg dvaldi í Seattle i þetta sinn, var eg til heimilis hjá Frank R. Johnson og konu hans Sigurbjörgu. Er Frank bróðir Jóns Runólfsonar skálds, en Sigurbjörg systir Ólafs heit. And- ersonar i Minneota og þeirra systkina. Eru börn þeirra hjóna öll uppkomin og hin mannvænlegustu. Þrjár dætur og einn son- ur ertf enn i föðurhúsum, og eru þau öll við' starf í borginni. Átti eg hjá fólki þessu hina ánægjulegustu dvöl. Húsbóndinn er glöggur vel og skáldmæltur, húsfreyjan fyrirmynd i sinni stöðu, og unga fólkið mjög alúðlegt. Alt s'kildi það islenzku, en lagði lítið fyrir sig að tala hana. Eg dvaldi í S'eattle yfir sex sunnudaga. Guðsþjónusturnar voru fluttar í norskri kirkju, sem. er ánægjulegt og veglegt hús. Gerði húsnæðið ekki lítið til þess að gera guðsþjónusturnar að- laðandi. Aðsóknin fór vaxandi, en var frá byrjun mjög á- nægjuleg. Virku dagana var eg stöðugt á ferðinni meðal fólks í þeim erindum, að fá undirtektir þess í sambandi við viðreisn safnaðarins. Alment fanst mér eg verða var við löngun hjá fólkinu eftir því, að fast safnaðarstarf mætti komast á, þó nokk- uð mismunandi væri trú manna á því, hvort líklegt væri aö það gæti tekist. Márgir lofuðu mjög ríflegum styrk til safnaSarins, og yfirleitt voru undirte'ktir svo góðar, að alveg sjálfsagt reynd- ist að endurreisa söfnuðinn, sem áður var. Um það voru sam-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.