Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1925, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.04.1925, Qupperneq 17
111 látnum, sorgarleiksmanninum fræga, líkir hann æfi leikarans vi(5 sjónleik í sjö þáttum, og endar á þessa leiti: ‘Svo fellur tjaldiS. Mun þaÖ verÖa reist aftur nokkurn tíma? Skynsemin segir: ef til vill; en. vonin svarar: já’. “Þegar eg skoÖa hjarta mitt vel, þá finst mér eg geta bætt því við, að þetta ‘ef til vill’ í sambandi vih eilíföina, sé ein af á- stæðunum fyrir því, aÖ eg fer til kirkju og held áfram að reyna, þó miður takist, að lifa kristilegu lífi og trúa kristnum kenningum. “Og möguleikarnir eru mér í vil, mjög ákveðið. Hvað er dálítil viðleitni í þá átt að lifa hreinu lífi, að iðka réttlæti, að elska miskunnsemi og breyta eftir gullnu reglunni; hvað eru fáeinar stundir vikulegar í kirkjunni, eða ofurlítil hjálpsemi— hvað eru útlátin í þessum hlutum nema hverfandi smámunir í samanburði við það, að öðlast ‘ef til vill’ eilifa sælu að launum? Eg væri heimskingi, ef eg vogaði ekki svo litlu, því að þar hefi eg alt að græða, en engu að tapa. Jafnvel þótt eg tapi, þá græði eg samt; því að í andrúmslofti kirkjunnar er einhver hressandi kraftur, sem eykur starfsþrekið og gjörir lífið fagn- aðarríkara, jafnvel þótt eg sé ekki viss um það, hvort eg muni nokkurn tíma fá að vakna. aftur upp af síðasta svefninum.” Svo hljóðar játning þessa manns. Ýmislegt mætti finna hér athugavert, að sjálfsögðu, til dæmis við skilning hans á kjarna kristindómsins—sem reyndar er ekki nema eðlilegt, þar sem hann skortir trúarvissuna. En einmitt fyrir þá sök, að efagjarn maður og litil-trúaður skrifar þetta, þá fær vitnis- burðurinn sérstakt gildi. Hann sýnir kraft og göfgi kristin- dómsins. Manninum er auðsjáanlega hlýtt til kirkjunnar, þrátt fyrir annarlegar skoSanir eða skoöanaleysi; hann finnur þar aðdráttarafl, sem hann vili ekki spyrna á móti; lífskraft ein- hvern, sem nafntogaðir talsmenn efans, eins og þeir Huxiey, Spencer og Ingersoll, hafa ekki getað rýmt hurt úr hjarta hans, þó hugurinn hafi fallist á boðskap þeirra í mörgum greinum. Margir hafa sjálfsagt orðið fyrir svipáðri reynslu; kristin- dóms- orðið hefir dularfullan 'kraft í sér fólginn; það “hverfur ekki aftur við svo búið.” Stundum, þegar hugurinn amast við trúnni, þá er eins og hún nái djúpum rótum í hjartanu; marg- ur, sem ekki finst hann geta samþykt kenninguna, verður þó var við þennan dularfulla kraft, — og finnur, að það er eitt- hvað heilagt við hann; að áhri.fin eru góð og göfgandi. Við þetta kannast mjög margir trúleysingjar, þegar þeir ræða um kristindómsmálin af sanngirni og skynsemd.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.