Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1925, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.04.1925, Qupperneq 20
114 síður í heimsmálunum. Ef satt skal segja, þá láta nú kirkjurn- ar hér í Ameríku mikiS meira til sín taka i gjörvöllu lífi þjóS- arinnar, heldur en nokkru sinni fyr. Það er vel ómaksins vert, að rifja upp fyrir sér, hversu þráfaldlega þessir há-upplýstu vinir vorir hafa sungið yfir kir'kjunni sama líksönginn. Fyrir tveim öldum veik Butler hiskup orSum sinum að þeirri bræðrasveit. Hann byrjar bók sína um “Samsvörun trúarinnar” — bók, sem sló botninn úr öllum þeirra röksemdum svo gjörsamlega, að, frihyggjendur þurftu heila öld til að ná sér aftur,—með þessum oröum: “Eg veit ekki hvernig á því stendur, en menn eru nú farnir að taka því eins og sjálfsögðum hlut, að kristindómurinn sé jafnvel ekki verður athugunar; það ,sé nú loksins orSið augljóst, að hann hvíli á skrökum og hugarburði.” En þá kom Wesley til sögunnar, og trúvakningin fór yfir England eins og eldur i sinu, og neistarnir bárust vestur yfir Atlantshaf, til Ameríku. ÞaS var fyrir réttum hundrað áum, að Joseph Hume lét sér þau orö um munn fara, í neðri málstofunni á Englandi, að “ungir herramenn fengist nú vonandi ékki lengur til að hætta fé og kröftum í annað eins skrapatól, eins og kirkjan væri, og myndi því þessum heimskulegu prestvigslum bráðlega linna.” Varla hafði hann slept orðinu, þegar smárita-hreyfingin mikla hófst í ensku kirkjunni, og gjörði landið alt að helgidómi til- beiðslunnar. Um sömu mundir hrifu þei.r æskulýð Englend- inga með bókurn sínum, Frederick Maurice, Thomas Arnold1 og Charles Kingsley; og þá var fríkirkjuhreyfingin enska í fæðingunni. Og litlu siðar, þegar þeir Huxley, Tyndall, Spen- cer og Romanes voru teknir að visa kristindóminum niður í heimkynni æfintýra og þjóðsagna, og lýstu því yfir með and- vörpum, að “félaginn mikli væri nú dauður”, þá reis heiðingja- trúboðs-hreyfingin eins og flóðalda og breiddist út um Indland, Kína og Japan. Njýjar kirkjur voru stofnsettar daglega, á meðan vísindamenn þessir voru að bisa viti að koma legstein- inum að höfðalagi kirkjunnar. Það er eins og enskur rithöf- undur segir: “Sannleikurinn er sá, að kristindómurinn fæst ekki til að helga sér vist i forngripasöfnunum.” Bolsevikar fá ekki grandaíS honum. Ef nokkuð hefði getað gjört út af við hann, þá var styrjöldin líklegust til þess, en hann hefir staðist eldraun þeirrar afneitunar. Hann er frá Guði. Hann hefir eilífðar-frækorn í sé fólgin. Verði hann myrkvaður um stund, þá skín hann'því skærar á eftir. Verði hann fyrir árásum, þá kemur það því betur i ljós, að lífsmagn hans er frá Guði. Þeg-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.